Document Actions

Viðburðir

Viðburðir
 
Fyrri viðburðir
 
NORA-ráðstefna um lýðfræðilegar áskoranir Norður-Atlantshafssvæðisins
Dagsetning Oct 20, 2009 til Oct 21, 2009
Fjöldi ungs fólks flyst í burtu. Einungis fáir bætast við og margir fara aftur. Þessi þróun veldur áhyggjum á mörgum stöðum á Norður-Atlantshafssvæðinu. Í október mun norræna Atlantshafssamstarfið standa fyrir ráðstefnunni; "Challenged by demography", en þar verður fjallað um málið og unnið að sameiginlegri stefnumörkun um hvernig best verður tekið á lýðfræðilegum áskorunum á svæðinu.
Ráðstefnan Eyrarsundsþingið 2010 - Framtíðarsýn 2020
Dagsetning May 28, 2010 til May 28, 2010
Ráðstefnan markar upphaf hátíðahalda vegna 10 ára afmælis Eyrarsundssvæðisins. Stjórnmálamenn, samtök og fyrirtæki munu kynna og ræða sameiginlega framtíðarsýn fyrir svæðið. Fjallað verður m.a. um hugmyndir um hvernig landamæralaust svæði, þekking, rannsóknir og sameiginlegur vinnumarkaður geta aukið aðdráttarafl svæðisins, m.a. í Evrópsku samhengi.
Námstefna: Samhæfð stórborgastjórnun á höfuðborgarsvæðum norrænu ríkjanna
Dagsetning Nov 11, 2010 til Nov 11, 2010
Norræna stofnunin Nordregio, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina heldur námstefnu sem fjallar um borgarskiplag á höfuðborgarsvæðum á Norðurlöndum. Námstefnan fjallar um samþættingu skipulags, þróunaráætlana og samskipti ríkis og annarra stjórnsýslustiga.
ESPON verkefnið DEMIFER - Stefnumótunarhádegisverður - 9. nóvember 2010
Dagsetning Nov 09, 2010 til Nov 09, 2010
Hver er núverandi stefna og tækifæri framtíðar hvað varðar búferlaflutningar, frjósemi og manndauða í Evrópu? Hvaða áhrif mun lýðfræðileg staða mála hafa á hin ýmsu svæði næstu árin? Hvaða stefna og umbætur geta stuðlað að aðlögun þróunarinnar? Nordregio býður ESB, norrænum og svæðisbundunum ákvörðunartakendum til umræðna og kynningar á ofangreindum málefnum.
Framtíðarþáttaröð 4: Þörf fyrir svæði og sýslur? Reynslusögur frá Svíþjóð og Finnlandi
Dagsetning Nov 26, 2010 til Nov 26, 2010
Hvaða vandamál munu stjórnvöld leysa með breytingum á svæðishönnun og -stjórnsýslu? Hvað getum við lært hvert af öðru? Er aukin byggðavæðing lausnin á úrlausnaefnum framtíðarþjóðarinnar?
Umræður: Framtíðarvelferð Svíþjóðar og Finnlands
Dagsetning Jan 27, 2011 til Jan 28, 2011
Ætlað hugveitum og stofnunum frá Svíþjóð og Finnlandi. Markmiðið er að mynda tengslanet hugveita og hugmyndafræðinga og auka áhuga og þekkingu á samfélagslegum málefnum ríkjanna. Framtíðar fjármögnun og skipulagning velferðar, tengslin við ESB verða til umræðu, auk þess að fjallað verður um það hvað er líkt og ólíkt hjá hugmyndasmiðum og hugveitum í Svíþjóð og Finnlandi.
NORA Region Conference 2011
Dagsetning Apr 05, 2011 til Apr 05, 2011
Byggðaráðstefna ætluð stjórnmálamönnum, embættismönnum, vísindamönnum, fulltrúum atvinnulífsins og öðrum sem ákvarðanir taka á NORA svæðinu, en aðrir sem áhuga hafa á aðstæðum við Norður-Atlantshaf eru einnig velkomnir.
Heimur tækifæranna: Norræn námstefna í Rovaniemi
Dagsetning Apr 08, 2011 til Apr 08, 2011
Nyrst á Norðulöndum - Norðurlönd tækifæranna. Námstefna haldin í tilefni af 30 ára afmæli Norræna félagsins í Lapplandi. Meðal annars verður rætt um hvaða augum þeir sem reynsluna hafa og unga fólkið líta norræna samstarfið.

 

Tengiliður

Janne Marijke de Jong
Sími +4533960281
Tölvupóstur