- Info
Fyrri viðburðir
-
Að takast á við lýðfræðilegar breytingar
-
Dagsetning
28/02 2012
til 28/02 2012
-
Nordregio og Distriktssenteret bjóða til vinnustofu þar sem miðlað verður norrænni reynslu af lýðfræðilegum breytingum, framboði starfsafls og hvað gerir ákveðin svæði aðlaðandi.
-
Hvernig afnemum við stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum?
-
Dagsetning
31/10 2011
til 31/10 2011
-
Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, býður til umræðufundar um stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum. Halló Norðurlönd kynnir ritið „Sagan af Jyrki og Jóhönnu", þar sem segir frá ýmsum vandamálum sem norrænir borgarar lenda í þegar þeir flytjast á milli norrænu ríkjanna. Halló Norðurlönd býður fulltrúum flokkahópa Norðurlandaráðs til fundarins til að ræða efni þessa rits. Hvaða hindranir er brýnt að afnema og hvernig förum við að því?
-
Ráðstefna um leitina að aukinni nýsköpun á Norðurlöndum
-
Dagsetning
14/09 2011
til 15/09 2011
-
Þátttakendur á Skagerrak ráðstefnunni verða lykileinstaklingar frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð, sem vinna að framþróun og veita einkafyrirtækjum ráðgjöf. Sjónum verður beint að frumkvöðlastarfi, vexti og nýsköpun.
-
Fimmta ráðstefnan um rannsóknir á menningarstefnu
-
Dagsetning
24/08 2011
til 25/08 2011
-
Þema ráðstefnunnar er „Áhrif og deildur af völdum menningarstefnu. Markmiðið er að styrkja rannsóknir á menningarstefnu á Norðurlöndum og efla alþjóðlegt tegslanet vísindamanna. Ráðstefnan fer fram á norsku, dönsku, sænsku og ensku.
-
AÐ VELJA SÉR LEIÐ - Norrænar konur um fyrirtæki, stjórnun og þróun
-
Dagsetning
12/08 2011
til 14/08 2011
-
Ráðstefna fyrir allar konur og karla sem hafa áhuga á og sem sjá tækifæri í fyrirtækjum kvenna og stjórnun, og vilja til að vaxa og stuðla að svæðisbundinni þróun og samstarfi þvert á landamæri.
-
Svæðasamstarf á landamærasvæðum 2011
-
Dagsetning
14/06 2011
til 16/06 2011
-
Á ráðstefnu um svæðasamstarf á landamærasvæðunum 2011 verða tækifæri til að skiptast á reynsu og mynda tengsl. Þema ráðstefnunnar 2011 verður European Grouping for Territorial Coopertion (EGTC) og stjórnsýsluhindranir.
-
Norræn hátíð Tartu
-
Dagsetning
23/05 2011
til 29/05 2011
-
Sex félagar í "the Nordic Chain" hittast annað hvert ár í einum af þátttökuborgunum. Árið 2009 var hátíðin í Uppsölum í Svíþjóð og nú er komið að Tartu í Finnlandi.
Hátíðirnar eru vettvangur umræðu um úrlausnarefni, hugmyndir og upplifun sem mætir okkur á norðursvæðum.
-
Heimur tækifæranna: Norræn námstefna í Rovaniemi
-
Dagsetning
08/04 2011
til 08/04 2011
-
Nyrst á Norðulöndum - Norðurlönd tækifæranna. Námstefna haldin í tilefni af 30 ára afmæli Norræna félagsins í Lapplandi. Meðal annars verður rætt um hvaða augum þeir sem reynsluna hafa og unga fólkið líta norræna samstarfið.
-
NORA Region Conference 2011
-
Dagsetning
05/04 2011
til 05/04 2011
-
Byggðaráðstefna ætluð stjórnmálamönnum, embættismönnum, vísindamönnum, fulltrúum atvinnulífsins og öðrum sem ákvarðanir taka á NORA svæðinu, en aðrir sem áhuga hafa á aðstæðum við Norður-Atlantshaf eru einnig velkomnir.
-
Hádegisumræður: Kemst flokkur sannra Finna í ríkisstjórn?
-
Dagsetning
31/03 2011
til 31/03 2011
-
Hádegisverðarfundur um finnsku ríkisstjórnarkosningarnar. Fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna; samstöðuflokksins, miðflokksins, grænna og sænska þjóðarflokksins ræða stöðu mála við fulltrúa stjórnarandstöðuflokkanna; jafnaðarmenn og flokk sannra Finna.
-
Menntun stuðlar að þróun
-
Dagsetning
08/03 2011
til 08/03 2011
-
Ráðstefna um hvernig laða má að og viðhalda félagslegri auðlegð á jaðarsvæðum með skipulagðri áherslu á menntamál..
-
Umræður: Framtíðarvelferð Svíþjóðar og Finnlands
-
Dagsetning
27/01 2011
til 28/01 2011
-
Ætlað hugveitum og stofnunum frá Svíþjóð og Finnlandi. Markmiðið er að mynda tengslanet hugveita og hugmyndafræðinga og auka áhuga og þekkingu á samfélagslegum málefnum ríkjanna.
Framtíðar fjármögnun og skipulagning velferðar, tengslin við ESB verða til umræðu, auk þess að fjallað verður um það hvað er líkt og ólíkt hjá hugmyndasmiðum og hugveitum í Svíþjóð og Finnlandi.
-
Upplýsingadagur um styrki, Upplýsingaskrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Eistlandi
-
Dagsetning
20/01 2011
til 20/01 2011
-
Madis Kanarbik frá Upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Tartu (NCM) mun kynna áætlun um starfsmannaskipti opinberra starfsmanna milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna 2009 - 2013.
Upplýsingaskrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar hefur umsjón með styrkjum til opinberra starfsmanna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum.
-
Fundur fulltrúa Norðurlanda, Eystrasaltsríkja og Bretlands í London
-
Dagsetning
19/01 2011
til 20/01 2011
-
19. - 20. janúar 2011 funda forystumenn ríkisstjórnar Bretlands með fulltrúm Norðurlandanna fimm og Eystrasaltsríkjanna þriggja í London. Rætt verður um þau úrlausnarefni sem nútíma norður-evrópskt hagkerfi stendur frammi fyrir og hvernig stuðla má að jafnrétti, velferð og samkeppnishæfni í efnahagsþrengingum.
-
EDORA lokanámskeið - 3.12.2010, Brussel
-
Dagsetning
03/12 2010
til 03/12 2010
-
Þróun og tækifæri: Jaðarstefna fyrir fyrrum landbúnaðarsvæði í Evrópu.
