NORA-ráðstefna um lýðfræðilegar áskoranir Norður-Atlantshafssvæðisins
Fjöldi ungs fólks flyst í burtu. Einungis fáir bætast við og margir fara aftur. Þessi þróun veldur áhyggjum á mörgum stöðum á Norður-Atlantshafssvæðinu. Í október mun norræna Atlantshafssamstarfið standa fyrir ráðstefnunni; "Challenged by demography", en þar verður fjallað um málið og unnið að sameiginlegri stefnumörkun um hvernig best verður tekið á lýðfræðilegum áskorunum á svæðinu.
