- Info
Sækja um styrki
-
Mannaskiptaáætlun fyrir atvinnulíf á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum
-
Mannaskiptaáætlunin fyrir atvinnulíf styrkir starfsmenn í atvinnulífinu og iðnaði til námsheimsókna og þjálfunar í öðru ríki, auk þess sem tækifæri gefst til eftirmenntunar og tengslmyndunar. Markmið áætlunarinnar er að styrkja og efla efnahagslegt samstarf, frumkvöðla, svæðisbundið samstarf og nýsköpunartækifæri. Áætlunin er til fimm ára, 2009 til 2013, henni er stjórnað af skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Lettlandi.
-
Mannaskiptaáætlun Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna fyrir opinbera stjórnsýslu
-
Mannaskiptaáætlun Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna fyrir opinbera stjórnsýslu hefur árlega 270.000 evrur til úthlutunar. Styrkir eru veittir til embættismanna og annarra opinberra starfsmanna til námsheimsókna, starfsþjálfunar, þjálfunar og uppbyggingu tengslaneta á svæðinu. Styrkir eru háðir því að þrjú lönd hið minnsta taki þátt í verkefnunum, þar af minnst eitt Norðurland og eitt Eystrasaltsríki.
-
NORDBUK: Sækja um styrk
-
Norræna barna- og ungmennanefndin (NORDBUK) veitir styrki til félagasamstarfs og verkefna á sviði æskulýðsmála.
-
Nordforsk: Norræna rannsóknamiðstöðin Áætlun um mannaskipti innan stofnfrumurannsókna
-
Markmiðið með Mannaskipta- og stofnfrumurannsóknaáætlun Nordforsk er að styrkja norrænt samstarf um rannsóknir á stofnfrumum í framtíðinni, með mannaskiptaáætlun fyrir nýja doktora. Einstaklingar með doktorspróf geta sótt um styrki í áætlunina. Umsýslu með flestum styrkjunum hafa háskólar eða rannsóknastofnanir. Umsækjendur skulu vera í samstarfi við háskóla eða aðra rannsóknastofnun í öðru norrænu ríki en heimalandi, þar sem vinna skal í tvö og hálft af þremur starfsárum verkefnisins.
-
Styrkjaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir frjáls félagasamtök á Eystrasaltssvæðinu
-
Frjáls félagasamtök gegna mikilvægu hlutverki í samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland, til að mynda í umhverfismálum og lýðræðisþróun, en einnig við uppbyggingu tengslaneta og samstarfs þvert á landamæri á Eystrasaltssvæðinu.
