Norrænt samstarf um erfðaauðlindir
Norrænt samstarf um erfðaauðlindir miðar að því að tryggja komandi kynslóðum fjölbreytni í erfðaauðlindum matvæla og skógræktar.
Fjöldi tegunda og plantna er í útrýmingarhættu, ekki síst af völdum loftslagsbreytinga.
Norrænt samstarf um erfðaauðlindir á sér meðal annars stað hjá Norrænu erfðaauðlindastofnuninni – NordGen, sem varð til árið 2007 með sameiningu þriggja norrænna stofnana á þessu sviði.
Markmið Nordgen er að vinna að verndun og sjálfbærri nýtingu erfðaauðlinda plantna, húsdýra og skógar.
Nordgen hefur einnig byggt upp náið samstarf við Eystrsaltsríkin og eflt umhverfisvernd á Eystrasaltssvæðinu með varðveislu og rannsóknum á erfðaefni planta.
Erfðaefni eru undirstaða aðlögunar dýra og plantna að breyttum aðstæðum eins og loftslagsbreytingum, nýjum vaxtarskilyrðum, nýjum plöntu- og dýrasjúkdómum, aukinni framleiðslu og nýjum umhverfis- og neytendakröfum.
Með góðri og skilvirkri stjórnun erfðaauðlinda er lagður grunnur að kynbótum, þróun og nýsköpun í framtíðinni.
