- Info
Fyrri viðburðir
-
Ráðstefna um sjálfbæra framleiðslu og notkun á lífmassa í lífrænt eldsneyti á Eystrasaltssvæðinu, haldin í Kaupmannahöfn dagana 20.–21. mars 2012.
-
Dagsetning
20/03 2012
til 21/03 2012
-
Norræna ráðherranefndin og Evrópska umhverfisstofnunin standa að ráðstefnu háttsettra fulltrúa um sjálfbæra framleiðslu og notkun lífmassa í lífrænt eldsneyti á Eystrsaltssvæðinu.
-
Málþing um menningu: Myndun samstarfs innan Norrænu víddarinnar, 24.-25. nóvember í Finnlandi
-
Dagsetning
24/11 2011
til 25/11 2011
-
Markmið málþingsins er að ræða markmið og fjalla um árangur í samstarfi innan Norrænu víddarinnar um menningu (NDPC). Enn fremur er markmiðið að koma á uppbyggjandi skoðanaskiptum og stuðla að miðlun nýskapandi hugmynda milli fulltrúa fjármögnunaraðila og skapandi iðanaðar.
-
Norðurlandaráðsþing æskunnar dagana 28.-30. október 2011, Kaupmannahöfn
-
Dagsetning
28/10 2011
til 30/10 2011
-
Árlegt Norðurlandaráðsþing æskunnar verður að þessu sinni haldið í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn, Danmörku. Hefð er fyrir því að þingið er haldið helgina fyrir Norðurlandaráðsþing. Þetta árið hefst þingið með námstefnu föstudaginn 28. október. Þema þingsins í ár og námstefnunnar er Eystrasaltið og mannréttindi.
-
Námstefna: Mannréttindi á Eystrasaltssvæðinu
-
Dagsetning
28/10 2011
til 28/10 2011
-
Norðurlandaráð æskunnar og ungliðahreyfing Norrænu félaganna (FNUF) standa fyrir námstefnu um mannréttindi á Eystrasaltssvæðinu. Rætt verður um manréttindi frá þremur sjónarhornum: réttindi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks, mansal, og réttindi verkamanna á vinnumarkaði. Námstefnan er opin almenningi og aðgangur er ókeypis.
-
Norðurlönd í Almedalnum 2011
-
Dagsetning
03/07 2011
til 10/07 2011
-
-
Lausnir í nánd, saman - ráðstefna um sjálfbærni á Eystrasaltssvæðinu
-
Dagsetning
31/01 2011
til 02/02 2011
-
Tilgangur ráðstefnunnar er að tryggja samspil efnahags- og félagslegra sjónarmiða og umhverfissjónarmiða með það að markmiði að finna lausnir sem hagnast öllum jafnt svæðisbundnum stjórnvöldur, samféalginu og íbúum. Í dagskrá ráðstefnunnar verður sjónum beint að því hvernig þekking, hugmyndir, viðhorf og framleiðsla geta stuðlað að sjálfbærum ferlum.
-
Ráðstefna: The power of the Baltic Sea macro-region
-
Dagsetning
30/11 2010
til 01/12 2010
-
Það er Eystrasaltssvæðið, The Baltic Sea Region, sem stendur fyrir ráðstefnunni sem haldin verður í Jyväskylä, Finnlandi. Sjónum verður beint að svæðinu sem fyrirmynd svæðasamstarfs í Evrópu. Frummælendur verða Tarja Halonen forseti Finnlands og Mauri Pekkarinen fjármálaráðherra Finnlands. Akademískri frummælendur verða meðal annarra John Bachtler frá European Policies Reserach Centre í Glasgow og Ole Damsgaard, framkævmdastjóri Nordregio.
-
Eiga Norðurlöndin að vera eitt sambandsríki?
-
Dagsetning
05/11 2010
til 05/11 2010
-
Umræðufundur verður haldinn 5. nóvember í Kaupmannahöfn með Gunnari Wetterberg höfundi ársrits Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs 2010 „Sambandsríkið Norðurlönd“. Þar mun Gunnar Wetterberg kynna hugmyndir sínar og ræða þær við Thorsten Borring Olesen prófessor við Árósaháskóla og Henrik Dam Kristensen formann dönsku sendinefndarinnar í Norðurlandaráði. Sjónvarpsþáttastjórnandinn Clement Behrendt Kjersgaard stýrir umræðunum.
-
Fyrsta árlega málþingið um stefnu ESB á Eystrasaltssvæðinu, Tallin, 14.-15. október 2010
-
Dagsetning
14/10 2010
til 15/10 2010
-
Dagana 14.-15.október verður fyrsta árlega málþingið um Eystrsaltsstefnu ESB haldið. Þar verður gerð grein fyrir framgangi framkvæmdaáætlunarinnar og rætt um frekari þróun stefnunnar. Ráðherranefndin mun halda fund þar sem áhersla verður lögð á grænan hagvöxt.
-
Námstefna: Hver ræður yfir Eystrasaltinu?
-
Dagsetning
24/09 2010
til 24/09 2010
-
Hvernig hefur íbúum Eystrasaltsins tekist að aðlagast þeim hröðu breytingum sem orðið hafa í öryggisstefnu á svæðinu? Eftir sögulegt yfirlit yfir fyrri áskoranir á Eystrasaltssvæðinu fylgja fyrirlestrar um það sem helst er á döfinni, hvernig umhverfisöryggi, efnahagsmál og félagslegt öryggi hafa áhrif á þróun stefnumörkunar um öryggismál á svæðinu.
-
Ráðstefna um stefnu ESB fyrir Eystrasaltssvæðið, Evrópu 2020 og grænan hagvöxt
-
Dagsetning
23/09 2010
til 23/09 2010
-
Danir hafa tekið að sér stórt hlutverk í framkvæmd stefnu ESB fyrir Eystrasaltssvæðið, en hún gæti orðið undirstaða evrópskrar og svæðisbundinnar samþættingar, en hve langt erum við komin í framkvæmd stefnunnar?
-
ESB stefna fyrir Eystrasaltssvæðið, Evrópa 2020 og grænn hagvöxtur
-
Dagsetning
23/09 2010
til 23/09 2010
-
Námstefna um forgangsatriði Dana og áherslusvið, 23. september 2010
Á námstefnunni verður farið yfir Eystrasaltsstefnu ESB og rætt hvernig nýta má stefnuna til að framkvæma áhersluatriði sem tengjast nýjum markmiðum ESB (Evrópa 2020) - sem fjalla meðal annars um það hvernig samstarf á grannsvæðum getur styrkt samkeppnishæfni og græna hagvaxtarmöguleika, auk þess verður fjallað um hvað til þarf til að atvinnulífið takið aukin þátt í starfinu.
-
Ráðstefna um samstarf milli Eystrasalts- og Norðurskautssvæðisins - hugmynd Stoltenbergs
-
Dagsetning
17/09 2010
til 17/09 2010
-
Hálfsdagsráðstefna um úrlausnarefni og stjórnun á Eystrasaltssvæðinu, Barentshafssvæðinu, Norðursvæðunum og á Norðurskautssvæðinu. Fjöldi mála er á dagskrá, þar á meðal orkuöryggi, nýting náttúruauðlinda, stjórnunartæki o.fl.
Þátttaka er ókeypis en skráning er nauðsynleg. Frestur til að skrá sig á ráðstefnuna er 14. september 2010, skráning á: nor@um.dk
Ráðstefnan er haldin í samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar, danska utanríkisráðuneytisins og Dönsku stofnunarinnar um alþjóðalegt nám (DIIS).
-
19. þingmannaráðstefna Eystrasaltsins, haldin í Maríuhöfn, 29. -31. ágúst 2010
-
Dagsetning
29/08 2010
til 31/08 2010
-
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að: samstarfi á Eystrasaltssvæðinu, afleiðingum loftslagsbreytinga á líffræðilegan fjölbreytileika á Eystrasaltssvæðinu og að Eystrasaltssvæðinu sem friðsömu og öruggu svæði.
-
HELCOM fundur í Stokkhólmi 23. ágúst.
-
Dagsetning
23/08 2010
til 23/08 2010
-
33. fundir yfirmanna sendinefnda innan HELCOM verður haldinn í Stokkhólmi, Svíþjóð 23. ágúst.
-
Framkvæmd Eystrasaltsstefnu ESB í gegnum samræmt norrænt-evrópskt samstarf, Brussel
-
Dagsetning
29/06 2010
til 29/06 2010
-
Samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við framkvæmdastjórn ESB hefur leitt í ljós að takmörkuð þekking er á starfi ráðherranefndarinnar sumstaðar á Eystrasaltssvæðinu. Þetta gæti komið í veg fyrir samræmingu á svæðisbundnu, norrænu og evrópsku samstarfi og verkefnum og þar með takmarkað möguleika á framkvæmd markmiða Eystrasaltsstefnunnar.
Byggt á ofangreindu ákvað ráðherranefndin í samstarfi við fulltrúa frá Eystrasaltssvæðinu (óformlegur Baltic Sea hópur, IBSG) og framkvæmdastjórn ESB - stjórnadeild byggðamála, að halda sameiginlega námstefnu í Brussel þann 29. júní 2010.
-
Leiðtogafundur Baltic Development Forum, Vilníus
-
Dagsetning
01/06 2010
til 02/06 2010
-
12. leiðtogafundur Baltic Development Forum var haldinn í Vilníus dagana 1.-2. júní 2010 undir yfirskriftinni „European Challenges – Regional Solutions, An Agenda for Jobs, Investments and Sustainable Growth”.
Ráðherranefndin var sem fyrr mikilvægur þátttakandi og tók í þessu sambandi einnig þátt í fjármögnun árlegrar skýrslu „State of the Region Report”
-
Frá orði til framkvæmdar - hvað gera Eystrasaltsríkin til að bjarga Eystrasaltinu?
-
Dagsetning
25/05 2010
til 25/05 2010
-
Eftir 11 ár á Eystrasaltið að vera laust við ofauðgun og hættuleg efni, líffræðilegur fjölbreytileiki í hafinu á að vera mikill og siglingar umhverfisvænar. Það hafa öll ríki við Eystrasaltið og Framkævmdastjórn ESB samþykkt. Þann 20. maí kynna Eystrasaltsríkin áætlanir sínar um hvernig þau hyggjast framfylgja markmiðunum sem sett eru fram í framkvæmdaáætluninni Baltic Sea Action Plan Eru aðgerðir nægilegar og verður hægt að framfylgja áætlununum? Norræn námstefna í sænska þinginu, þriðjudaginn 25. maí.
-
Fundur í vinnuhópi um vistkerfi vatnabúskapar 11.-12. mars 2010, Kaupmannahöfn
-
Dagsetning
11/03 2010
til 12/03 2010
-
Vinnuhópur um vistkerfi vatnabúskapar heldur vorfund í Kaupmannahöfn dagana 11.-12. mars 2010.
