Að flytjast milli landa og ferðast til vinnu
Það á að vera auðvelt að flytjast milli landa og ferðast til vinnu á milli Norðurlandanna. Frá árinu 1957 hafa Norðurlandabúar getað ferðast milli Norðurlandanna án vegabréfs. Vinnumarkaður hefur verið sameiginlegur síðan 1954, um það bil 40.000 manns ferðast til vinnu á milli tveggja Norðurlanda í viku hverri. Álíka margir flytjast búferlum á hverju ári. Tiltölulega mikið flæði fólks er á milli Norðurlandanna. Ekki síst á landamærasvæðunum þar sem þetta flæði er afar mikilvægt.
