Norrænt samstarf um framhaldsskólamenntun
Framhaldsskólamenntun hefur breyst mikið í öllum norrænu ríkjunum. Frá því að vera menntun fyrir fáa útvalda, stunda nú langflest ungmenni nám sem veitir réttindi til háskólanáms (í menntaskóla) eða starfsnám. Í norrænu samstarfi er lögð áhersla á sameiginleg úrlausnarefni sem m.a. tengjast auknum gæðum og betri aðlögun þannig að sem flestir eigi möguleika á að ljúka framhaldsskólanámi.
