Vorráðstefna
Norræna lýðháskólanefndin býður lýðháskólafólki frá öllum Norðurlöndunum til vorráðstefnu sem haldin verður í Norræna lýðháskólanum í Kungälv. Þema ráðstefnunnar í ár verður sjálfbær þróun. Auk kynninga og umræðna verður boðið til kynnisferðar á stærstu umhverfissýningu Svíþjóðar, Ekocentrum.
