Um samstarf um fullorðinsfræðslu
Norðurlöndin hafa þörf fyrir velmenntað og sveigjanlegt starfsafl. Þess vegna leggja löndin áherslu á að fleiri ungmenni ljúki námi eftir grunnskólann og að allir fái tækifæri til að læra og þróast allt lífið. Norænt samstarf um fullorðinsfræðslu er mikilvægur vettvangur til þess að miðla reynslu, fá hugmyndir og öðlast þekkingu til þess að mæta þessum úrlausnarefnum. Norrænt samstarf getur stuðlað að því að löndin uppfylli sín markmið um færniþróun, gæðatryggingu og jafnrétti.
Hvers vegna samstarf um fullorðinsfræðslu?
Norrænt samstarf um fullorðinsfræðslu veitir fullorðnum tækifæri til að tileinka sér nýja þekkingu og nýja færni.
Það á við um námsferli sem hefur ákveðið markmið þar sem fullorðnir geta lokið ferlinu með prófi eða viðurkenningu, til dæmis námsferli á símenntunarmiðstöðvum.
Það á einnig við um námsferli sem hefur ákveðið markmið en þar sem ekki er tekið próf og ekki veitt prófskírteini, til dæmis dvöl á lýðháskóla eða námskeið á vegum lýðfræðslunnar.
Loks á það við um nýja þekkingu sem fullorðnir tileinka sér þegar þeir heimsækja bókasöfn og önnur söfn, taka þátt í félagsstarfi eða þegar þeir fá ný verkefni á vinnustað.
Norðurlöndin verða að tryggja góð þróunartækifæri fyrir alla. Hækkandi lífaldur íbúa Norðurlandanna er einnig áskorun fyrir löndin. Spurningin er hvernig halda má í og laða að starfsafl og jafnframt tryggja íbúum sem verða eldri velferð og umönnun.
Norrænt tengslanet um fullorðinsfræðslu
Árið 2004 samþykktu norrænu mennta- og rannsóknaráðherrarnir að koma á fót norrænum vettvangi fyrir alla sem starfa við fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum. Vettvangurinn hlaut nafnið Norrænt samstarfsnet um fullorðinsfræðslu (NVL).
NVL heldur námskeið og ráðstefnur fyrir kennara, stjórnendur, sérfræðinga, ráðgjafa, embættismenn og stjórnmálamenn þar sem tækifæri gefst til að ræða þau mál sem efst eru á baugi eins og til að mynda hvernig nýta má upplýsingatækni til að staðfesta og viðurkenna raunfærni.
NVL samanstendur af mörgum tengslanetum á ýmsum sviðum fullorðinsfræðslu. Þar eru til dæmis gæðanet, leiðbeininganet og tengslanet sem vinnur að rannsóknum á fullorðinsfræðslu. Í tengslanetunum miðla sérfræðingar, ráðgjafar og stjórnendur reynslu, leita að hugmyndum og framkvæma rannsóknir, greiningar og kortlagningu á fagsviði hvers og eins.
Í hverju Norðurlandanna er NVL-samræmingaraðili sem getur aðstoðað starfsfólk á stofnunum og í fyrirtækjum við skipulag funda, ráðstefna og námskeiða þegar viðburðinum er ætlað að fjalla um norrænt málefni.
Á heimasíðu NVL eru nánari upplýsingar um NVL og þar er yfirlit yfir tengiliði í hverju landi fyrir sig. Á heimasíðu NVL eru kynntar nýjar aðgerðir, verkefni og rannsóknir á sviði fullorðinsfræðslu, þar er hægt að lesa um námskeið og ráðstefnur og fræðast um norræn, evrópsk og alþjóðleg málefni sem tengjast fullorðinsfræðslu.
NVL gefur út rafræna fréttabréfið NVL Nytt 11 sinnum á ári.
Vefritið DialogWeb, með greinum og viðtölum frá Norðurlöndunum og grannsvæðum þeirra, kemur út átta sinnum á ári.
Loks gefur NVL út í prentformi tímaritið "Dialog" þar sem birtar eru áhugaverðustu greinar liðins árs.
Ráðgjafahópur um norrænt samstarf um fullorðinsfræðslu (SVL) ber ábyrgð á NVL.
Norrænt samstarf um fullorðinsfræðslu
Ráðgjafahópur um norrænt samstarf á sviði fullorðinsfræðslu (SVL) myndar með könnunum, greiningum og skýrslum nýja þekkingu um hvernig fullorðnir tileinka sér nýja þekkingu og innsýn.
SVL hefur til að mynda látið kortleggja hvaða atriði eru mikilvæg til að styðja við færniþróun á vinnustað. Markmiðið með rannsókninni er að kortleggja hvernig Norðurlöndin vinna að því að auka fjölda innflytjenda og afkomenda þeirra sem taka þátt í fullorðins- og símenntun.
SVL hefur einnig ákveðið að láta fara fram umræðu um hvernig efla megi skapandi hæfileika og nýsköpun í fullorðinsfræðslu og yfirlit yfir menntunarframboð fyrir kennara í fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum.
Þýðing samstarfsins
Samstarfið um menntun og fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum hefur haft í för með sér fjölmörg tækifæri fyrir íbúa Norðurlandanna.
Sem þátttakandi á námskeiði, starfsmaður á stofnun sem sér um fullorðinsfræðslu, félagi í félagi, starfsmaður í fyrirtæki eða þátttakandi í frjálsum félagssamtökum í norrænu ríki átt þú möguleika á að taka þátt í verkefnum sem heyra undir Nordplus Voksen áætlunina.
Nordplus Voksen veitir styrki til heimsókna, mannaskipta, stofnunar tengslaneta og verkefna þvert á landamæri Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Markmið áætlunarinnar er að einstaklingar og stofnanir sem taka þátt í kennslu- og menntaverkefnum fyrir fullorðna, geti unnið saman, þróað tengslanet og myndað samstarfshópa svo aðilarnir geti hvatt hvern annan til að þróa gæði og hugmyndir á sviði fullorðinsfræðslu.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Nordplus þar sem einnig er hægt að finna samstarfsaðila ef þú ert með hugmynd að verkefni eða tengslaneti.
