Document Actions

Vefslóðir

Menningar- og menntamálanefndin
Menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs fjallar um og gerir tillögur að pólitískum aðgerðum á sviði menningar og menntunar, þar á meðal mál er varða tungumálasamstarf, nýja miðla, færniþróun og nýsköpun á sviði menntunar.
Þekkingar- og velferðarsvið (KV)
Þekkingar- og velferðarsvið vinnur að verkefnum á sviði menntunar og rannsókna og auk þess á sviði félagsmála, þ.m.t. að heilbrigðis- og velferðarmálum. Sviðið fæst einnig við upplýsingatæknimál á Norðurlöndum og ber ábyrgð á norræna tungumálasamstarfinu.
Norræna blaðamannamiðstöðin
Norræna blaðamannamiðstöðin vinnur að því að skapa og viðhalda áhuga í fjölmiðlum á norrænni samkennd og sameiginlegri menningu. Til að ná markmiðinu eru haldin námskeið, námstefnur og aðrir viðburðir sem miða að færniuppbyggingu.
Norræni lýðheilsuháskólinn (NHV)
NHV er stofnun um æðri menntun og rannsóknir á sviði lýðheilsu. Háskólinn býður grunn-, símenntunar- og rannsóknanámskeið í lýðheilsufræðum fyrir starfsfólk í heilbrigðisgeiranum og á sviðum sem tengjast honum á Norðurlöndunum.
Ráðgjahópur um norrænt samstarf um fullorðinsfræðslu (SVL)
Fullorðinsfræðsla er undirstaða símenntunar í norrænu samstarfi. Ráðgjafahópurinn leggur áherslu virka umræðu við alla sem hagsmuna eiga að gæta á sviðinu.
Norræna ráðherranefndin um menntun og rannsóknir (MR-U)
Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um rannsóknir og menntun er stjórnað af norrænu ráðherrunum sem fara með málefni menntamála og rannsókna, saman mynda þeir MR-U. Ráðherranefndin vinnur að því að Norðurlöndin verði í fararbroddi hvað varðar þekkingu og samkeppnishæfni.
Norrænt tengslanet um fullorðinsfræðslu (NVL)
Tengslanetið vinnur að því að auka sýnileika færni og reynslu af fullorðinsfræðslu á Norðurlöndunum.
NordForsk
NordForsk er norræn stofnun sem hefur umsjón með samstarfi um rannsóknir og rannsóknamenntun á Norðurlöndunum. Stofnunin leggur áherslu á rannsóknasvið sem Norðurlöndin standa sig best í á alþjóðavettvangi.