Á hverju hausti mætir fjöldi barna í fyrsta sinn í skóla á Norðurlöndunum. Sá skóli sem börnin ganga í á að undirbúa þau undir áframhaldandi skólagöngu og veita þeim undirstöðu fyrir virka og fulla þátttöku í atvinnu- og þjóðfélagslífi. Norrænt skólasamstarf leitast við að auka gæði þeirra kennslu sem skólinn býður hverju barni fyrir sig, þannig að hvert og eitt barn fái sem besta byrjun í lífinu.
Hvers vegna norrænt samstarf um grunnskólamenntun?
Það er yfirlýst markmið Norðurlandanna að standa fyrir öflugu og góðu mennta- og rannsóknasamstarfi á Norðurlöndum. Norðurlöndin eru hvert öðru lík, landfræðilega, sögulega og menningarlega.
Menntakerfin eru um margt lík og standa andspænis svipuðum vandamálum. Þau geta lært mikið hvert af öðru. Með samstarfi má ná betri árangri, til ánægjuauka og gagns fyrir skóla- og aðrar menntastofnanir - og fyrir hvern einstakan nemanda.
