Um heilbrigðismál á Norðurlöndum
Norrænt samstarf á félags- og heilbrigðissviðinu byggir á undirstöðugildum norræna velferðarlíkansins. Samstarfið stuðlar að aukinni velmegun á Norðurlöndum með því að bæta forsendur góðrar lýðheilsu. Markmiðið er einnig að minnka ójöfnuð í heilbrigðismálum og miðla upplýsingum og þekkingu um heilbrigðismál. Félagsmála og heilbrigðisgeirinn á í miklu samstarfi við grannsvæði Norðurlandanna en það beinist sérstaklega að fyrirbyggjandi starfi til að vernda og bæta heilbrigði og lífskjör. Að auki taka Norðurlöndin virkan þátt í evrópsku samstarfi á sviði heilbrigðismála jafnframt því að starfa með alþjóðlegum samtökum og stofnunum.
