Document Actions

Um heilbrigðismál á Norðurlöndum

Norrænt samstarf á félags- og heilbrigðissviðinu byggir á undirstöðugildum norræna velferðarlíkansins. Samstarfið stuðlar að aukinni velmegun á Norðurlöndum með því að bæta forsendur góðrar lýðheilsu. Markmiðið er einnig að minnka ójöfnuð í heilbrigðismálum og miðla upplýsingum og þekkingu um heilbrigðismál. Félagsmála og heilbrigðisgeirinn á í miklu samstarfi við grannsvæði Norðurlandanna en það beinist sérstaklega að fyrirbyggjandi starfi til að vernda og bæta heilbrigði og lífskjör. Að auki taka Norðurlöndin virkan þátt í evrópsku samstarfi á sviði heilbrigðismála jafnframt því að starfa með alþjóðlegum samtökum og stofnunum.

Geðheilsa

Norðurlöndin hafa nú þegar sameinað krafta sína til að bæta gæðamat í norræna heilbrigðiskerfinu með það fyrir augum að þróa betri þjónustu og auka gæði umönnunar á Norðurlöndum. Þessi vinna heldur áfram í framtíðinni en áhersla verður lögð á geðheilsu. Norðurlöndin öll standa andspænis áskorunum: Geðheilsa er stærsta lýðheilsuvandamál framtíðarinnar og í síauknum mæli orsök þess að fólk getur ekki stundað vinnu. Fjöldi þeirra sem fjarverandi eru frá vinnu vegna veikinda og sem fara á eftirlaun fyrir aldur fram vegna lélegrar geðheilsu hefur aukist gríðarlega.

Aðgerðir á sviði kynningar, forvarna og meðferðar eiga að verða skilvirkari. Aukið norrænt samstarf á sviði geðheilbrigðismála stuðlar að því að tengja þá aðila sem starfa á þessu sviði, auka miðlun reynslu og styðja endurbætur í geðhjúkrun og umönnun. Markmiðið er að minnka bæði heilbrigðismismunun og útilokun á Norðurlöndum jafnframt því að berjast gegn þeim neikvæðu áhrifum sem spurningar um geðheilbrigði valda.

Samstarf um nýsköpun og heilsuvernd á Norðurlöndu

Norðurlöndin eiga mikilvægt og umfangsmikið heilbrigðissamstarf. Löndin vinna til dæmis að því að þróa lausn til að auka við norræna sáttmálann um gildi lyfseðla svo sáttmálinn nái einnig til rafrænna lyfseðla. Þetta samstarf myndar norrænan virðisauka með þjónustu sem getur verið til mikilla bóta í daglegu lífi margra norrænna borgara, sem ferðast til vinnu yfir landamæri eða fara í frí á Norðurlöndum.

Norrænt heilbrigðissamstarf nær til fjölda annarra samstarfsmála sem öll hafa það að markmiði að bæta heilbrigði á Norðurlöndum. Til dæmis má nefna norræna stofnun sem einbeitir sér að tannheilsu Norðurlandabúa. Norræna stofnunin um efni til tannlækninga (NIOM) vinnur að því að þær vörur sem notaðar eru við tannlækningar á Norðurlöndum uppfylli kröfur um heilbrigði og tæknileg atriði. Annað mikilvægt málefni sem samstarfið nær til er viðbragðsáætlun við heilbrigðisvá, sem felur í sér samnorræn viðbrögð við mögulegum innflúensufaraldri, menntun heilbrigðisstarfsmanna og gæðaþróun.

Aðgerðir gegn fíkniefnanotkun og útbreiðslu HIV/eyðni

Það sem er sameignlegt í norrænni áfengisstefnu er verndun lýðheilsusjónarmiðsins. Norðurlöndin starfa saman á sviði áfengismála innan ESB-samstarfsins og Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar. Þróunin er á réttri leið hvað varðar athygli á áfengismál innan ESB og á alþjóðavettvangi, en auknar kröfur eru þó gerðar til Norðurlandanna um að viðhalda þekkingu og halda í við þróunina eftir því sem áfengismál hljóta aukna athygli á alþjóðavettvangi. Þörf er á sameiginlegum aðgerðum til að koma í veg fyrir neikvæðar afleiðingar fyrir lýðheilsuna og til að aðstoða við miðlun vísindalegrar þekkingar bæði í Evrópu og á alþjóðavettvangi.

Norrænt samstarf nær einnig til aðgerða gegn notkun á öðrum lyfjum. Norðurlöndin hafa sett af stað mikilvæg samstarfsverkefni til dæmis gegn fíkniefnanotkun, ekki einungis á Norðurlöndum heldur einnig á Eystrasaltssvæðinu. Norðurlöndin eru drifkrafturinn í samstarfi um lýðheilsu og félagslega velferð innan norðlægu víddarinnar, þar sem áhersla er lögð á aðgerðir gegn áfengis- og fíkniefnamisnotkun ásamt baráttu gegn HIV/eyðni. 

Norræna velferðarmiðstöðin í Finnlandi stuðlar að og þróar þvervísindalegt samstarf á sviði áfengis- og lyfjarannsókna auk rannsókna á öðrum vanabindandi efnum. Starfsemin beinist aðallega að rannsóknum á sviði samfélagsvísinda, þar á meðal að félagslækningum og félagssálfræði . Stofnunin vinnur að því að auka þekkingu á neyslu vímuefna, forvörnum, vímuefnastefnu, afleiðingum vímuefnanotkunar og meðferð vímuefnamisnotenda.

Nánari upplýsingar um norræn heilbrigðismál

Norðurlöndin eiga sameignlegan samstarfsvettvang um samræmingu staðtalna um heilbrigðismál: Norrænu lyfjatölfræðinefndina (NOMESKO). Nefndin gefur árlega út skýrslu um staðtölu í heilbrigðismálum á Norðurlöndum og vinnur að því að upplýsingar í norrænum skýrslum um staðtölur í lyfjageiranum séu eins nýjar og mögulegt er. NOMESKO á einnig frumkvæði að þróunarverkefnum sem fylgja þróuninni í staðtölum lyfja á alþjóðavettvangi.

Mikilvægur þáttur í norrænu lýðheilsustarfi er Norræni lýðheilsuháskólinn (NHV) sem hefur að markmiði að miðla þekkingu sem stuðlar að góðri og jafnri heilsu. Við NHV fara fram gæðarannsóknir, kennsla og verkefnavinna í lýðheilsufræðum. Áhersla er lögð á að bæta lýðheilsu í nútíð og framtíð, til gagns fyrir samfélagið, en ávallt með hliðsjón af þörfum nemendanna.

Tengt efni
  • Velferðarnefndin (Samtök)

    Velferðarnefndin vinnur með norræna velferðarlíkanið, velferð, heilbrigðis- og félagsmálastefnu