Norrænt samstarf um Noðurheimskautið
Stór hluti Norðurlandanna og hafssvæðisins er á Norðurheimskautssvæðinu. Norðurlöndin láta sig því málefni þessa einstaka, kaldranalega en einnig viðkvæma svæðis miklu varða. Norðurlöndin starfa saman að því að bæta lífskjör íbúa á norðurslóðum og styrkja félagslega og menningalega þróun á svæðinu. Einnig er unnið að því að varðveita viðkvæma og sérstaka náttúru svæðisins. Reynt er að tryggja sjálfbæra nýtingu auðlinda svæðisins og varðveita líffræðilega fjölbreytni.
Norrænt samstarf hefur varpað ljósi á lífsskilyrði á Norðurheimskautssvæðinu, jafnrétti og efnahagsmál á norðurslóðum. Samstarfið hefur aukið þekkingu á umhverfiseiturefnum, þungmálmum og loftslagsbreytingum við Norðurheimskaut. Norrænn stuðningur við Norðurskautsháskólann [en] hefur aukið tækifæri íbúa á svæðinu til menntunar. Auk þess hefur norrænt samstarf stutt við hreindýrarækt. Norræna ráðherranefndin byggir á opinnu umræðu og samstarfi og þess vegna er miklu fé varið til styrkja. Árlega fær fjöldi norrænna stofnanna og félagasamtaka styrki til að samstarfs á Norðurskautssvæðinu.
Stofnanir
Norrænt samstarf á Norðurheimskautssvæðinu er bæði þingmanna- og ríkisstjórnasamstarf. Norrænu þingmennirnir ræða málefni Norðurheimskautsins í Norðurlandaráði, auk þess að starfa einnig í fastanefnd Norðurheimskautsþingmanna (SCPAR [en]) um Norðurheimskautssvæðið og Barentshafssvæðið. Fastanefndin heldur þingmannaráðstefnu annað hvert ár. Fulltrúar í nefndinni eru þingmenn frá sjö heimskautslöndum og Evrópuþinginu. Ríkisstjórnarsamstarfið fer fram í gegnum, Norðurskautsráðið [en] og í samstarfi við ESB.
Samstarfsáætlunin
samstarfsáætlunin um Norðurheimskautið á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar er rammi um verkefni og aðgerðir á Norðurheimskautssvæðinu. Norræna samstarfið er umfangsmikið og nær til umhverfismála, heilbrigðismála, orkumála, rannsókna, menningar, menntunar, upplýsingatækni, rannsókna og atvinnulífs. Norræna ráðherranefndin nýtir einnig samstarfsáætlun um Norðurheimskautið í samstarfinu innan Norðurskautsráðsins, ESB og í samstarfinu við Barentsráðið [en]. Samstarfsáætlunin um Norðurskautið styður þar að auki við samstarfsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar við Rússland, sem landfræðilega séð nær yfir hluta af sama svæði.
Norræna ráðherranefndin er með sérstök verkefni, áætlanir og aðgerðir varðandi Norðurskautssvæðið. Samræming og ábyrgð er á höndum samstarfsráðherranna. Á vegum ráðherranefndarinnar starfa fagnefnd sem er ráðgefandi við skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgni verkefna ráðherranefndarinnar á Norðurheimskautssvæðinu. Fagráðherranefndir í Norrænu ráðherranefndinni hafa einnig staðið fyrir og sett af stað fjölda verkefna og aðgerða á svæðinu.
Sjá einnig norðurskautsvefgáttina [en].
