Hreyfihamlaðir einstaklingar
Samstarf fyrir hreyfihamlaða einstaklinga á Norðurlöndum er fjölbreytt og unnið af fjölmörgum stofnunum. Að hluta til er um að ræða verkefnið hönnun fyrir alla, en þar gegnir Norræna ráðið um málefni fatlaðra lykilhlutverki. Norræna velferðarmiðstöðin gegnir mikilvægu hlutverki í tengslum við málefni fatlaðra, hjálpartæki fyrir fatlaða og menntun þeirra sem starfa með daufblindum.
Norðurlöndin eiga mikilvægt samstarf um málefni hreyfihamlaðra einstaklinga og stefnumörkun um málefni fatlaðra. Stefnt er að því markmði að samfélagið sé notendavænt og aðgengilegt öllum borgurum.
Aðgengi á að vera jafnt fyrir alla einstaklinga. Norræn samfélög á að byggja upp útfrá hugmyndinni um hönnun fyrir alla. Norræna ráðherranefndin hefur því beitt sér fyrir aðgerðaáætlun sem ber heitið 'Hönnun fyrir alla'.
Stór hluti norræns samstarfs um málefni fatlaðra fer fram innan vébanda Norræna ráðsins um málefni fatlaðra, sem er stefnumarkandi og ráðgefandi vettvangur fyrir Norrænu ráðherranefndina í heild sinni.
Norrænt samstarf um aðgengi fyrir alla felur einnig í sér samstarfsverkefni með Norðvestur-Rússlandi og Eystrasaltsríkjunum þremur, sem snýst um stuðning við hreyfihömluð börn og unglinga, og fjölskyldur þeirra.
Hönnun fyrir alla
Hönnun fyrir alla er hugmynd sem hefur unnið landvinninga um allan heim, markmiðið er að samfélagið sé aðgengileg og notendavænt fyrir alla borgara, óháð hreyfigetu. Það snýst um að fjarlægja samfélagsskapaðar hindranir fyrir hreyfihamlaða.
Hlutfall hreyfihamlaðra einstaklinga eykst með hækkandi aldri. Margir einstaklingar rekast þá á hindranir í samfélaginu, sem felast m.a. í að vörur og þjónusta eru ekki aðgengilegar öllum. Þess vegna er þörf á samfélagsskipulagi sem gerir ráð fyrir öllum, byggt á grunnreglunni um hönnun fyrir alla.
Norræna ráðherranefndin styður grundvallarregluna um hönnun fyrir alla með norrænni framkvæmdaáætlun fyrir árin 2005 til 2007. Í framhaldi af áætluninni eru í framkvæmd ýmis verkefni með það að markmiði að kortleggja, samræma og bæta aðgengi á Norðurlöndunm
Á Norðurlöndum er unnið að málefninu á sviði vinnumarkaðar, lýðræðis, menningar, samfélags- og byggingariðnaðar, samgangna, ferðaþjónustu og menntunar og er það Norræna ráðið um málefni fatlaðra sem samhæfir starfið.
Dæmi um verkefni innan ramma „Hönnunar fyrir alla".
- Lífsskilyrði og lífsgæði fyrir einstaklinga með skertan þroska.
- Röð vinnustofa um hönnun fyrir alla um stefnu þjóðlandanna á vegum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.
- Hönnun fyrir alla sem stefna að því að stuðla að sjálfbærri þróun.
Norræna ráðið um málefni fatlaðra
Norræna ráðið um málefni fatlaðra er stefnumarkandi og ráðgefandi vettvangur fyrir Norrænu ráðherraefndina í heild sinni. Hlutverk ráðsins er að auka norrænt samstarf um málefni fatlaðra á öllum sviðum samfélagsins og stuðla að framkvæmd sameiginlegra markmiða hvað varðar málefni fatlaðra sem snúa að jafnrétti og fullri þátttöku í samfélaginu í samræmi við yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um réttindi hreyfihamlaðra einstaklinga.
Norræna ráðið um málefni fatlaðra hefur sett á stofn tengslanet um málefni vinnumarkaðar, bygginga- og samfélagsskipulag, menningu, samgöngur og menntun. Þannig er unnið á ýmsum ólíkum sviðum.
- Hönnun fyrir alla sem leiðbeinandi grunnregla
- Lýðræði fyrir alla, þátttaka barna og unglinga
- Aðgengilegt menningarlíf, Söfn fyrir alla
- Aðgengilegar almenningssamgöngur, „ferðin öll"
- Vinnumarkaðsmál: Aðgengi fyrir ungt fólk
- Aðgengi að æðri menntun
- Borgarskipulag fyrir alla
- Ferðaþjónusta fyrir alla
Samstarfsáætlun við Norðvestur-Rússland og Eystrasaltsríkin
Um nokkurt skeið hefur verið unnið að samstarfsverkefni með Norðvestur-Rússlandi, Eistlandi, Lettlandi og Litháen (2006-200) með það að markmiði að veita hreyfihömluðum börnum og fjölskyldum þeirra aðstoð.
Markmið verkefnisins er að bæta aðstæður hreyfihamlaðra einstaklinga og fjölskyldna þeirra, með því að breyta afstöðu til hreyfihamlaðra barna, með framhaldsmenntun fyrir starfsfólk og þróun þjónustuúrræða fyrir þessi börn og fjölskyldur þeirra.
Stýrihópar í þjóðlöndunum stjórna þessu starfi. Þátttakendur eru fulltrúar viðkomandi ráðuneyta, sérfræðingar, frjáls félagasamtök og skrifstofur Norrænu ráðherranefndarinnar í löndunum. Vonir eru bundnar við að verkefnin hafi í för með sér að hreyfihömluð börn geti lifað lífi sem felur í sér að þau geti aðlagast almannakerfinu og sótt dagheimili og skóla og tekið þátt í leik og starfi þrátt fyrir að þurfa aðstoð við að bjarga sér.
Gert er ráð fyrir að börnin búi heima hjá foreldrum sínum sé þess nokkur kostur. Sérstakur hópur aðstoðarfólks skipaður fulltrúum frá Evrópuráðinu, skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar og norrænum stofnunum tengist stýrihópnum í Norðvestur-Rússlandi.
Verkefnið tengist þekkingar- og tengslanetaáætlun Norrænu ráðherraefndarinnar, en rúmlega 50 embættismenn og sérfræðingar frá Múrmansk, Kalíningrad og Pétursborg hafa farið í námsferðir á vegum áætlunarinnar.
Þá hafa einnig verið haldnar ýmsar ráðstefnur. Ein þeirra var haldin í Pétursborg þann 14. desember 2007 og var efnið "Social support to disabled children and their families: experiences of St. Petersburg, Murmansk and the Nordic Countries’.
Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn er reglulega í sambandi við upplýsingaskrifstofur Norrænu ráðherranefndarinnar og samstarfsaðila til þess að tryggja framkvæmd og árangur. NVC stjórnar samstarfsverkefnunum. Viðbrögð við áætluninni sýna að mikill áhugi er á að bæta aðstæður fatlaðra, en einnig á notkun norrænna aðferða.
