Document Actions

Vefslóðir

Norræn ráðherranefnd um félags- og heilbrigðismál (MR-S)
Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna á sviði félags- og heilbrigðismála er stjórnað af norrænu félags- og heilbrigðisráðherrunum, sem saman mynda MR-S. Norræna samstarfið á sviði félags- og heilbrigðismála byggir á sameiginlegum gildum, en þau eru undirstaða norræna velferðarlíkansins.
Norræna ráðið um málefni fatlaðra
Ráðið er stefnumarkandi og ráðgefandi fyrir Norrænu ráðherranefndina, ráðið sér til þess að mikilvæg málefni fatlaðra séu tekin á dagskrá jafnt á norrænum vettvangi og í hverju landi fyrir sig.
Norræna velferðarmiðstöðin
Verkefni Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar er að auka gæði í félagsmálageiranum á Norðurlöndunum með rannsóknum, þróunarstarfi, uppbyggingu tengslaneta og alþjóðlegu samstarfi.
Norræni lýðheilsuháskólinn (NHV)
NHV er stofnun um æðri menntun og rannsóknir á sviði lýðheilsu. Háskólinn býður grunn-, símenntunar- og rannsóknanámskeið í lýðheilsufræðum fyrir starfsfólk í heilbrigðisgeiranum og á sviðum sem tengjast honum á Norðurlöndunum.
Þekkingar- og velferðarsvið (KV)
Þekkingar- og velferðarsvið vinnur að verkefnum á sviði menntunar og rannsókna og auk þess á sviði félagsmála, þ.m.t. að heilbrigðis- og velferðarmálum. Sviðið fæst einnig við upplýsingatæknimál á Norðurlöndum og ber ábyrgð á norræna tungumálasamstarfinu.
Velferðarnefndin
Velferðarnefndin vinnur með norræna velferðarlíkanið, velferð, heilbrigðis- og félagsmálastefnu