Norðurlöndin og Hvíta-Rússland
Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin eiga með sér samstarf til að stuðla að lýðræðisþróun í Hvíta-Rússlandi. Norrænt samstarf styður hvítrússnesk ungmenni til æðri menntunar, setur á fót verkefni fyrir frjáls félagssamtök á Eystrsaltssvæðinu og styður svæðisbundið samstarf á landamærasvæðum. Að auki hafa Norðurlöndin tekið þátt í að móta hlutlausan umræðugrundvöll fyrir skoðanaskipti hvítrússneskra stjórnmálamanna.
