Norðurlönd og Hvíta-Rússland
Norðurlöndin vinna ásamt Eystrasaltsríkjunum að þróun lýðræðis í Hvíta-Rússlandi. Norrænt samstarf styður hvítrússnesk ungmenni til æðri menntunar, setur á fót verkefni fyrir frjáls félagssamtök á Eystrsaltssvæðinu og styður svæðisbundið samstarf á landamærasvæðum. Að auki hafa norrænu ríkin átt þátt í að mynda hlutlausan umræðuvettvang þar sem hvítrússneskir stjórnmálamenn geta skipst á skoðunum.
Norræna ráðherranefndin hefur umsjón með verkefninu Civil Society Stability for Belarus (CSSB), sem styður borgaralegt samfélag í Hvíta-Rússlandi eftir forsetakosningarnar 2010. Nánari upplýsingar: www.cssb.lt.
Landamæri Hvíta-Rússlands liggja að Lettalandi, Litháen og Norðvestur-Rússlandi og því er það eðlilegt að norrænu ríkin ásamt Eistlandi, Lettlandi og Litháen vinni að því að efla sameiginleg gildi eins og lýðræði, góða stjórnsýslu, jafnrétti, tjáningarfrelsi og umburðarlyndi.
Útlagaháskólinn: European Humanities University:
Frá árinu 2005 hafa norrænu ríkin, í samstarfi við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, styrkt hvítrússneska útlagaháskólann European Humanities University ((EHU)).
Háskólinn sem er staðsettur í Vilníus, höfuðborg Litháen, er flaggskip norrænnar þátttöku í Hvíta-Rússlandi. Þar hafa um 2.000 ungir Hvítrússar aðgang að menntun á sviði hug- og samfélagsvísinda.
Kvikmynd um European Humanities University (EHU)
Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar hefur umsjón með alþjóðlegum sjóði fyrir EHU í samstarfi við EHU. Markmiðið er að tryggja betri samhæfingu styrkja til háskólans.
Norðurlönd hafa einnig umsjón með styrkjaáætlun fyrir unga Hvítrússa sem stunda nám í háskólum í Úkraínu því þeir geta ekki lokið námi sínu í Hvíta-Rússlandi af pólitískum ástæðum.
Frjáls félagasamtök
Frjáls félagasamtök í Hvíta-Rússlandi hafa síðan árið 2006 tekið þátt í fjölmörgum verkefnum með systursamtökum á Eystrsaltssvæðinu, í Póllandi og á Norðurlöndum á vegum norrænnar áætlunar fyrir frjáls félagssamtök á Eystrasaltssvæðinu.
Samtökin hafa fengið styrki til uppbyggingar og myndunar tengslaneta frá áætluninni.
Annað samstarf
Samstarf norrænu ríkjanna um svæðasamstarf á landamærasvæðum á Eystrsaltssvæðinu nær einnig til Hvíta-Rússlands.
Svæðasamstarf á landamærasvæðum, sem nær til landamærasvæða og sveitarfélaga á landamærum ýmissa ríkja fer meðal annars fram í tengslanetinu Baltic Euroregional Network (BEN) og í verkefnum.
Tvö hvítrússnesk sveitarfélög og ein frjáls félagasamtök frá Hvíta-Rússlandi tóku þátt í BEN-EAST-verkefninu, sem er að hluta til fjármagnað af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (NOPEF) hefur undanfarin ár víkkað starfssvið sitt og styrkir hann nú einnig norræn fyrirtæki sem vilja hefja starfsemi í Hvíta-Rússlandi.
Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) samþykkti einnig nýlega að auka umfang sinnar starfsemi þannig að hún nái einnig til Hvíta-Rússlands.
Þingræðisleg umræða
Til þess að skapa vettvang skoðanaskipta í Hvíta-Rússlandi hafa norrænu ríkin skipulagt fundi milli þings landsins og stjórnarandstöðu. Norrænir þingmenn hafa einnig tekið þátt í fundunum. Hingað til hafa fundirnir verið haldnir á „hlutlausu svæði" í Vilníus í Litháen.
Þetta er einstakur vettvangur þar sem stjórnmálamenn geta hist og rætt málefni sem eru ofarlega á baugi eins og orkumál, loftslagsbreytingaar, lýðræði og mannréttindi. Jafnframt veita fundirnir hvítrússnesku stjórnarandstöðunni tækifæri til að segja sína skoðum og eiga skoðanaskipti við þingið.
Nánar um samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við Hvíta-Rússland
