Document Actions

Greinar

Bjartsýni í viðskiptum skapandi listamanna
Á hverjum degi þurfa þær Anne-Liis Leht og Kristi Ringkjob að sanna fyrir umheiminum að þær stundi alvöru rekstur og viðskipti. En glerlistakonurnar kveinka sér aldrei enda er bjartsýni þeirra óbilandi. Nú eru rúm tvö ár síðan þær stofnuðu fyrirtækið Annkris-Glass. Reksturinn stendur í miklum blóma og þær stöllur stefna enn hærra.
Jafnrétti bætir andrúmsloftið
Loftslagsbreytingar koma illa niður á konum í suðri og körlum í norðri. Konur voru hátt í 80% þeirra sem fórust í flóðbylgjunni í Asíu 2004. Ísinn bráðnar á norðurskauti og við það hverfa undirstöður hefðbundinna atvinnugreina veiðimanna. Breytingar á andrúmsloftinu hafa ólík áhrif á karla og konur, en kynin skilja einnig eftir sig ólík kolvetnisspor og hafa þannig mismunandi áhrif á loftslagið. Loftslagsmálin settu svip sinn á árið 2009 og brýnt þótti að norrænu ríkin settu kynjasjónarmið á dagskrána í alþjóðlegum loftslagsviðræðum.
Norðurlönd ekki lengur best í heimi
Samfélagsumræðan, umfjöllun um jafnréttismál og þrýstingur frá kvennahreyfingunni hafa afgerandi áhrif á jafnréttisþróunina. Þetta eru nokkrar mikilvægustu niðurstöður rannsóknaverkefnis sem NIKK hefur unnið um kyn og völd í stjórnmálum og atvinnulífi.
Ofbeldi gegn konum ennþá vandamál
Markku Heikkilä
28/08 2008
Ríkisstjórn Finnlands birti nýja jafnréttisáætlun sína í júlímánuði síðastliðnum. Eitt mikilvægasta atriðið í áætluninni er baráttan gegn kynbundnu ofbeldi, vandamál sem lengi hefur verið viðvarandi í Finnlandi. Nefnd Sameinuðu þjóðanna um mismunun kvenna fékk leyfi til þess að gefa út eftirfarandi mat í New York í júlí á þessu ári: Ofbeldi gegn konum er algengt í Finnlandi þrátt fyrir að í landinu sé yfirleitt ríkjandi jafnrétti.
Ekki jafnt, en miðar í áttina
Ragnhildur Sverrisdóttir
28/08 2008
Norðurlandaþjóðirnar vita alveg hvað klukkan slær í jafnréttismálum. Þær standa þar einna fremstar allra þjóða í heiminum, eins og allir vita. Ísland er þar engin undantekning og reglulega fáum við fréttir af hinum og þessum verkefnum, sem eiga að tryggja jafnrétti í raun. Þekking okkar er útflutningsvara. Þannig hafa Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin unnið saman að jafnréttismálum undanfarinn áratug og það samstarf hefur tekist svo vel að því verður haldið áfram. Með sérstakri áherslu á að taka á mansali. Íslenska foreldra- og fæðingarorlofskerfið vekur athygli hjá öðrum Evrópuþjóðum.
Naiset taistelevat tasa-arvosta sekä huipulla että pohjalla
Thomas Larsen
28/08 2008
Tanskassa keskustellaan kiihkeästi samapalkkaisuudesta ja tasa-arvosta. Naiset vaativat yhdenvertaisuutta sekä työmarkkinoiden ylä- että alatasolla. Kevään sopimusneuvottelut takasivat matalapalkkaisille lähihoitajille ennennäkemättömän suuret palkankorotukset. Seuraava tavoite on samapalkkaisuuskomitea. Samalla kiinnitetään entistä enemmän huomiota siihen, ettei naisilla ole Tanskassa asiaa yhtiöiden hallituksiin.
Hindranir á hliðarspori
Jákup Magnussen
28/08 2008
Í Færeyjum er hlutfall kvenna í atvinnulífinu lágt þegar litið er til einkageirans en þær eru áhrifameiri í menningarlífinu. Menningarlegar og félagshagfræðilegar ástæður eiga sinn þátt í að hamla þátttöku kvenna í efsta lagi samfélagsins. Hlutfall kvenkyns stjórnmálamanna á Lögþinginu hefur aukist og stúlkur eru í meirihluta í menntaskólum.
Enn er kynbundinn launamunur
Aslak Bonde
28/08 2008
Fjórir af tíu stjórnarmönnum norskra stórfyrirtækja eru konur og Noregur er brautryðjendaland í heiminum. Í daglegu tali er rætt um jafnréttisferðaþjónustu, við tökum á móti sérfræðingum, stjórnmálamönnum og blaðamönnum frá öllum heiminum til að kenna þeim hvernig hægt er slá öll met í atvinnuþátttöku kvenna, vel að merkja án þess að fæðingum fækki. Það sem við hins vegar sýnum ekki jafnréttistúristunum er að kynbundinn launamunur hefur verið óbreyttur í 25 ár

 

Tengiliður

Jon Halvorsen
Sími: +45 29692922
Tölvupóstur:

Anne-Marie Jarnelind Münter
Sími: +45 33 96 02 00
Tölvupóstur: