Samningur milli Danmerkur, Íslands og Noregs um samstarf í samkeppnismálum frá 16. mars 2001. Samningur um breytingu á og aðild Svíþjóðar að samningnum var samþykktur 9. apríl 2003.
Samningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar til að komast hjá tvísköttun arfs og gjafafjár frá 12. september 1989. Svíþjóð sagði samningnum upp fyrir sitt leyti 25. júní 2007 og Svíar eru því ekki lengur aðilar að samningnum.
Samningur og bókun milli Norðurlanda til að komast hjá tvísköttun að því er varðar skatta á tekjur og eignir frá 23. september 1996 með bókunum um breytingar frá 6. október 1997 og 4. apríl 2008.