Document Actions

Norrænt samstarf um landbúnað

Sjálfbær þróun á Norðurlöndum er grundvallaratriði í norrænu samstarfi um landbúnað. Reynt er að ná aukinni samþættingu og áhrifum á alþjóðavettvangi með pólitískum umræðum og eftirfylgni við samstarfsverkefni þegar við leggjum áherslu á málefni sem eru miklvæg í norrænu samhengi.

Åker
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Einkenni landbúnaðar á Norðurlöndum er mikill munur á loftslagi og landfræðilegum aðstæðum, en jafnframt stendur greinin andspænis svipuðum vandamálum.

Hnattvæðing og aukin samkeppni setja atvinnugreinina í þá stöðu að þurfa sífellt að endurnýja sig og hugsa á nýjan hátt. Umhverfisvandamál og loftslagsbreytingar auka einnig þörfina fyrir eflingu sjálfbærrar þróunar á sviði landbúnaðar.

Hvers vegna samstarf um landbúnað?

Markmið norræns samstarfs á sviði landbúnaðar og skógvinnslu er að stuðla að raunverulegri sjálfbærri þróun á sviði landbúnaðar.

Í samstarfinu er lögð áhersla á ýmis atriði sem öll stuðla að því að efla þróun landbúnaðarframleiðslu undir áhrifum frá hnattvæðingu, umhverfismálum og loftslagsbreytingum:

  • umhverfismál og sjálfbærar framleiðsluaðstæður
  • afleiðingar loftslagsbreytinga fyrir landbúnaðarframleiðslu
  • notkun og sjálfbær nýting erfðaauðlinda
  • sjálfbær lífræn orka
  • þróun landsvæða
  • rannsóknir á sviði landbúnaðar
  • Ný norræn matargerðarlist

Verkefni

Undanfarin ár hefur átt sér stað mikil þróun á sviði matvælaframleiðslu.

Aukin áhersla er á fjölbreyttari landbúnaðar- og matvælaframleiðslu. Ástæðurnar eru breyttar óskir neytenda, alþjóðlegar samkeppnisaðstæður, áhugi framleiðenda á þróun framleiðslunnar, líffræðileg fjölbreytni og önnur atriði.

Norrænt samstarf leitast við að styðja við þessa þróun á margan hátt.

  • Norræna erfðaauðlindastofnunin

Norðurlöndin eiga með sér samstarf um erfðaauðlindir Norræna ráðherranefndin um fiskveiðar, landbúnað og skógrækt og matvæli (MR-FJLS) samþykkti árið 2007 að setja á fót sameiginlega stofnun með það að markmiði að efla rannsóknir á geymslu og sjálfbærri notkun erfðaauðlinda úr plöntum, húsdýrum og trjám.

Stofnunin varð til við sameiningu þriggja stofnana og hlaut heitið Norræna erfðaauðlindastofnunin - NordGen.

NordGen fæst við margskonar verkefni og gerir tillögur að aðgerðum í tengslum við loftlagsbreytingar og tækifæri til að auka fjölbreytni í landbúnaði og matvælaframleiðslu.

  • Ný norræn matargerðarlist

Þróunin hefur einnig fengið mikla athygli vegna áætlunarinnar Nýrrar norrænnar matargerðarlistar sem á sinn hátt stuðlar að aukinni fjölbreytni í framleiðslunni og einnig fyrir neyterndur.

Ný norræn matargerðarlist hefur mikil áhrif á nýsköpun á sviði landbúnaðar og stuðlar þar með að auknum samkeppniskrafti atvinnugreinarinnar.

 

Tengt efni

 

Tengiliður

Mads Randbøll Wolff
Sími: +45 33 96 02 56
Tölvupóstur: