- Info
Sækja um styrki
-
Nýsköpunarstyrkir Nordforsk
-
Nordforsk veitir nýsköpunarstyrki til rannsókna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Markmiðið er að efla og styrkja öndvegisrannsóknir sem eru á byrjunarreit. Miðað er að því að finna og styðja við vísindarannsóknir og -frumkvæði sem eru líkleg til að þróast og verða að öndvegisrannsóknum. Hugmyndin byggir á því að þróa nýjar hugmyndir með tiltölulega takmörkuðu fjármagni, þar til þær eru það langt komnar að þær eigi kost á fjármagni frá öðrum. Þeir sem stunda rannsóknir á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum geta sótt um styrkina. Þátttakendur í verkefnunum skulu vera frá þremur norrænum ríkjum , eða frá tveimur norrænum ríkjum og einu Eystrasaltsríki hið minnsta.
-
Styrkir Norrænu erfðaauðlindastofnunarinnar
-
Markmiðið með styrkjunum er að auka samstarf milli Norðurlandanna í gegnum framhaldsmenntun og miðlun reynslu jafnframt því að auka þekkingu þátttakenda á plöntuframleiðslu Mannaskipti þurfa ekki að vera gagnkvæm. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að atvinnurekandi leggi jafn mikið að mörkum og taki þátt í að greiða kostnað.
-
Styrkir Norrænu ráðherranefndarinnar úr áætlun um sjálfbæra þróun á Norðurlöndunum 2009-2012
-
Norræna ráðherranefndin hefur veitt styrki til verkefna sem stuðla að framkvæmd norrænnar stefnu um sjálfbæra þróun á sviði; loftslagsmála og endurnýjanlegra orkugjafa; sjálfbærrar framleiðslu og neyslu; velferðarþjóðfélagsins; auk menntunar og rannsókna, þátttöku borgaranna og staðbundinnar sjálfbærnistefnu. Ekki verður auglýst eftur umsóknum um styrki á árinu 2012.
-
Styrkjaáætlun Samnorrænna skógarannsókna
-
Samnorrænu skógarannsóknirnar styrka rannsóknir á skógrækt og nýtingu, skógum og öðrum trávaxtarsvæðum, nýtinu framleiðslu úr tré og öðrum framleiðsluvörum úr skógum og einnig eru styrktar rannsóknir á gildi skóga almennt. Sjóðurinn styrkir samstarf sem felur í sér þátttöku þriggja norrænna ríkja hið minnsta. Lönd á grannsvæðum Norðurlandanna geta einnig tekið þátt í samstarfinu, en þátttakendur verða samt sem áður að vera frá þremur norrænum ríkjum hið minnsta.
-
Verkefnastyrkir frá Norræna samstarfsvettvanginum um landbúnaðar- og matvælarannsóknir
-
Norræni samstarfsvettvangurinn um landbúnaðarrannsóknir setur af stað og fjármagnar norræn gæðarannsóknarverkefni á sviði landbúnaðar. Tekið er á móti umsóknum um verkefnisstyrki sem tengjast rannsóknavirkni svo sem til námstefna og tengslanetamyndunar. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að þátttakendur í verkefnum séu frá þremur norrænu ríkjunum hið minnsta.
