Um baráttuna gegn mansali
Mansal er alvarlegt brot á grundvallarmannréttindum.. Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin eru í samstarfi við Rússland, Eistland, Lettland og Litháen í baráttunni gegn mansali og við að aðstoða fórnarlömb. Berjast þarf gegn mansali með alþjóðlegu samstarfi.
Á hverju ári fer fram ólögleg verslun með konur, karla og börn þvert á landamæri. Skipulögð glæpastarfsemi stendur fyrir straumi farandverkamanna, vændi og alþjóðlegri sölu líffæra. Þetta hefur í för með sér ný vandamál sem tengjast hnattvæðingunni.
Fleiri tegundir mansals
Verslun með konur er ekki lengur eina tegund mansals á svæðinu. Reynslan annars staðar í Evrópu sýnir að verslun með fólk sem notað er við landbúnaðarstörf, í byggingavinnu og heimilisstörf eins og til dæmis „au pair” verður sífell útbreiddari. Fólk er einnig notað til líffærasölu og nauðungarvinnu, og börn er notuð til að betla og í kynferðislegum tilgangi.
Til þess að stöðva þessa þróun er þörf fyrir sameiginlega þekkingu og skilning á nýjum tegundum skipulegrar refsiverðrar misnotkunar á vinnuafli. Svæðisbundið og alþjóðlegt samstarf stjórnvalda og frjálsra félagasamtaka er nauðsynlegt. Til þess að ná árangri eru markvissar, samþættar og samræmdar aðgerðir gegn mansali á alþjóðavettvangi nauðsynlegar.
Norrænt samstarf gegn mansali
Í norrænu samstarfi er lögð mikil áhersla á aðgerðir gegn mansali og starfað markvisst að því að auka samræmdar og skilvirkar svæðisbundnar aðgerðir.
Norrænu jafnréttis-, félags-, heilbrigðis, og dómsmálaráðherrarnir hafa átt frumkvæði að fjölmörgum aðgerðum til að stöðva mansal á Norðurlöndum. Árið 2001 átti Norræna ráðherranefndin frumkvæði að herferð Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna gegn verslun með konur, með það að markmiði að skapa opinbera umræðu á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum.
Það tókst. Það hefur einnig tekist að koma á samstarfi við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland um baráttuna gegn mansali, og þá sérstaklega verslun með konur.
Ein af mörgum áskorunum er að tryggja fórnarlömbum mansals örugga framtíð í heimalandinu. Þegar þau koma aftur til föðurlandsins, tekst glæpamönnunum oft að ná í þau og senda út á ný. Norrænt samstarf við frjáls félagasamtök og stjórnvöld í Eystrasaltsríkjunum og Norðvestur-Rússlandi á að stuðla að því tryggja að fórnarlömbin verði örugg þegar heim kemur.
Svæðisbundið og alþjóðlegt samstarf
Norrænt samstarf vinnur að því að auka og þróa svæðasamstarf og samstarfið við grannríkin.
Frá árinu 2007 hefur rússneskum embættismönnum, starfsmönnum félagsþjónustunnar og frjálsum félagasamtökum verið boðið til Norðurlandanna til að styrkja samstarfið og byggja upp tengslanet í gegnum ’þekkingar og tengslanetaverkefni fyrir Norðvestur-Rússland’. Ráðherranefndin vinnur að svipuðum mannaskiptaáætlunum fyrir Eystrasaltsríkin.
Ráðherranefndin hefur átt frumkvæði að mörgum verkefnum. Sérstök áhersla er lögð á félagslega hlið mansals og jafnréttis. Meginmarkmiðið með verkefnunum er að byggja upp getu og færni til að berjast gegn mansali.
Nú þegar eru í gangi aðgerðir sem beinast að viðkvæmum unglingum, sem til dæmis hefur verið komið fyrir á upptökuheimilum eða í ungmennafangelsum. Aðgerðirnar eiga að hindra að ungmenni lendi í klónum á þeim sem stunda mansal.
Í apríl árið 2008 hélt Norræna ráðherranefndin alþjóðlega ráðstefnu í Pétursborg [en] þar sem fjallað var um fyrirbyggjandi starf í Norðvestur-Rússlandi, Eystrasaltsríkjunum og á Norðurlöndum.
Ráðstefnan var mikilvægur vettvangur fyrir miðlun „bestu framkvæmdar" og þar voru kynntar tillögur að því hvernig mismunandi hópar geta átt samstarf um að setja fram sameiginleg markmið og áætlanir í baráttunni gegn mansali, á Eystrasaltssvæðinu.
Norræna ráðherranefndin vinnur að baráttunni gegn mansali í Eystrasaltsráðinu, innan samstarfs Norðlægu víddarinnar á félags- og heilbrigðissviðinu (NDPHS [en]), OSCE, ESB, WHO og annarra alþjóðlegra stofnana.
Markmiðið er að samþætta, samræma og gera aðgerðirnar skilvirkari. Þrátt fyrir mikilvægar aðgerðir í þjóðlöndunum og á alþjóðavettvangi heldur mansalið áfram af sama krafti. Það er því enn mikil þörf fyrir þverpólitískt samstarf milli ríkja.
Löggjöf og framkvæmdaáætlanir
Löggjöf og refsirammi eru mikilvægir þættir í baráttunni gegn mansali. Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin voru meðal þeirra fyrstu sem samþykktu samning Sameinuðu þjóðanna gegn skipulagðri glæpastarfsemi milli þjóðlanda [en], sem nefnist Palmero-samningurinn.
Öll Norðurlöndin eiga framkvæmdaáætlanir gegn verslun með konur og mansali. Áætlanirnar miða að sameiginlegu markmiði, en eru þó mismunandi, og skipulag aðgerða landanna til að styðja og vernda möguleg fórnalömb mansal er einnig mismunandi. Þetta hefur í för með sér að samstarf um að miðla reynslu af framkvæmd áætlananna getur stuðlað að þekkingaruppbyggingu og þróun aðferða.
Jafnréttisráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna samþykktu í maí 2008 að vinna að sameiginlegri stefnu fyrir Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin, til að berjast gegn mansali í kynferðislegum tilgangi.
Mansal kemur borgurum á Norðurlöndum við
Eitt af því sem mikilvægt er til að koma í veg fyrir kynferðislega misnotkun er að minnka eftirspurn eftir kynlífi gegn greiðslu.
Í dag eru kaup á kynlífsþjónustu refsiverð í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Þó er sá munur á, að á meðan það hefur verið refisvert fyrir sænska kaupendur kynlífsþjónustu að kaupa þjónustuna í Svíþjóð síðan 1999, þá er það ólöglegt fyrir Norðmenn að kaupa þjónustuna bæði í Noregi og erlendis frá 2009. Í Finnlandi hefur það verið refsivert að kaupa kynlífsþjónustu af fórnarlömbum mansals síðan 2007. Á Íslandi var samþykkt að gera kaup á kynlífsþjónustu ólögleg í apríl 2009. Í Danmörk er hvorki ólöglegt að kaupa né selja kynlífsþjónustu.
Það er eftirspurn viðskiptavinanna sem viðheldur vændi og myndar markað, þar sem glæpamenn geta grætt vel á að misnota konur sem verslað er með. Þess vegna er mikilvægtað hafa áhrif á viðhorf þeirra sem kaupa kynlífsþjónustu, en það eru í flestum tilfellum karlar.
Norræna kvenna- og kynjafræðistofnunin (NIKK) lauk verkefninu „Vændi á Norðurlöndum" með ráðstefnu í október 2008. Þar var athyglinni beint að vændi og mansali í kynferðislegum tilgangi, þar á meðal afstöðu karla og kvenna til kaupa á kynlífsþjónustu.
