Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á dönsku.
- Info
Tidligere arrangementer
-
Námstefna: Góður árangur? Gæði og aðstæður barna í norræna velferðarkerfinu.
-
Dagsetning
11/10 2011
til 12/10 2011
-
Norræna velferðarmiðstöðin heldur námstefnu um skipulagningu og fjármögnun félagslegrar þjónustu fyrir börn og ungmenni með sérþarfir og um uppbyggingu "best practice" í félagslega kerfinu og þjónustu við börn. Markhópurinn eru opinberar stofnanir sem fara með málefni barna á Norðurlöndum .
-
Ný norræn matargerð - Tækifæri og framtíð norrænnar matargerðar, þegar borðar er utan heimilis, Helsinki, dagana 11. - 12. október 2011
-
Dagsetning
11/10 2011
til 12/10 2011
-
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að einu sértæku sviði í norræna velferðarlíkaninu - neyslu matar utan heimilis á stofnunum eins og skólum, sjúkrahúsum og mötuneytum.
-
Ráðstefnan Kultur för livet 2011(Menning fyrir lífið) - Norræn ráðstefna um menningu, heilsu og lífsgæði
-
Dagsetning
06/10 2011
til 07/10 2011
-
Takið þátt og hafið áhrif á velferðarsamfélag framtíðarinnar! Markmiðið með ráðstefnunni er að miðla þekkingu og skapa umræður um rannsóknir og framkvæmd á sviði menningar, heilsu og lífsgæða. Fulltrúar á ráðstefnunni verða stjórnmálamenn, vísindamenn og samfélagsgagnrýnendur frá Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Finnlandi. Finnar munu einnig kynna þverpólitíska framkvæmdaáætlun sína um menningu og velferð.
-
Norrænn dagur 2011 í Varsjá í Póllandi
-
Dagsetning
05/07 2011
til 05/07 2011
-
Á námstefnunni verður rætt um: „Snemmbúnar fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir féalgslega einangrun fjölskyldna."
Sjónum verður beint að fjölskyldustefnu, með það að markmiði að aðstoða fjölskyldur sem eiga á hættu að einangrast eins fljótt og unnt er.
-
Norðurlönd í Almedalnum 2011
-
Dagsetning
03/07 2011
til 10/07 2011
-
-
Ráðstefna: Norðurlönd og velferðarverkefni framtíðar, og hlutverk stéttarfélaganna
-
Dagsetning
19/06 2011
til 22/06 2011
-
Norræna embættismannaráðið (NTR) er samstarfsvettvangur stéttarfélaga opinberra starfsmanna á Norðurlöndum. NTR-ráðstefnan er árlegur viðburður, haldinn fyrir trúnaðarmenn og starfsfólk.
-
Fundur í norræna tengslanetinu um ofbeldi í nánum samböndum og ofbeldi gegn konum
-
Dagsetning
30/05 2011
til 31/05 2011
-
Finnska stofnunin fyrir heilsu og velferð býður til fundar í tengslum við formennsku Finna í Norrænu ráðherranefndinni. Markmiðið með fundinum er að skiptast á reynslu og þekkingu. Vísindamenn, stjórnmálamenn og aðrir sem vinna að málefnum tengdum ofbeldi í nánum samböndum og ofbeldi gegn konum eru velkomnir á fundinn.
-
Norræn hátíð Tartu
-
Dagsetning
23/05 2011
til 29/05 2011
-
Sex félagar í "the Nordic Chain" hittast annað hvert ár í einum af þátttökuborgunum. Árið 2009 var hátíðin í Uppsölum í Svíþjóð og nú er komið að Tartu í Finnlandi.
Hátíðirnar eru vettvangur umræðu um úrlausnarefni, hugmyndir og upplifun sem mætir okkur á norðursvæðum.
-
Ráðstefna: Velferð í sveitarfélögum og svæðum á Norðurlöndum
-
Dagsetning
05/05 2011
til 06/05 2011
-
Ráðstefna um norræna velferðarlíkanið og hlutverk sveitarfélag í Finnlandi og Svíþjóð.
-
Norrænn hnattvæðingarviðburður
-
Dagsetning
27/04 2011
til 28/04 2011
-
Norræna ráðherranefndin býður fimm af fjórtán hnattvæðingarverkefnum sínum til tveggja daga viðburðar. Verkefnin eru á sviði þekkingar, heilsu og velferðar.
-
Vinnustofa um upplýsingar og samskipti
-
Dagsetning
08/04 2011
til 08/04 2011
-
ATH! Vinnustofan hefur verið flutt í húsnæði Norrænu ráðherranefndarinnar, Ved Stranden 18, Kaupmannahöfn.
Boðið er til vinnustofu 8. apríl 2011 í Kaupmannahöfn, með það að markmiði að skilgreina þörf á uppglýsingagjöf og samskiptum um norrænt samstarf á sviði rannsókna- og menntunar, og félags- og heilbrigðismála. Byggt er á þeirri staðreynd að norræna samstarfið sé mikið og gott, en þó almennt óþekkt á Norðurlöndunum. Þessi staðreynd er óviðunnandi og á henni þarf að taka.
-
Heimur tækifæranna: Norræn námstefna í Rovaniemi
-
Dagsetning
08/04 2011
til 08/04 2011
-
Nyrst á Norðulöndum - Norðurlönd tækifæranna. Námstefna haldin í tilefni af 30 ára afmæli Norræna félagsins í Lapplandi. Meðal annars verður rætt um hvaða augum þeir sem reynsluna hafa og unga fólkið líta norræna samstarfið.
-
Nordic Tour 2011 - fyrirmyndaraðferðir í umönnun aldraðra
-
Dagsetning
15/02 2011
til 29/03 2011
-
Enn einu sinni býður NIVA til námstefnuraðar á öllum Norðurlöndunum:
15. febrúar, Säätytalo, Helsinki, Finnlandi. 25. febrúar, KTH, Hanninge, Stokkhólmi, Svíþjóð, 10. mars, Rannsóknasetur um vinnuumhverfi, Kaupmannahöfn, Danmörku, 18. mars, Radisson Blu Saga Hotel, Reykjavík, Íslandi, 29. mars, Vinnuumhverfisstofnun ríkisins, Ósló, Noregi.
-
Umræður: Framtíðarvelferð Svíþjóðar og Finnlands
-
Dagsetning
27/01 2011
til 28/01 2011
-
Ætlað hugveitum og stofnunum frá Svíþjóð og Finnlandi. Markmiðið er að mynda tengslanet hugveita og hugmyndafræðinga og auka áhuga og þekkingu á samfélagslegum málefnum ríkjanna.
Framtíðar fjármögnun og skipulagning velferðar, tengslin við ESB verða til umræðu, auk þess að fjallað verður um það hvað er líkt og ólíkt hjá hugmyndasmiðum og hugveitum í Svíþjóð og Finnlandi.
-
Norræn ráðstefna um eigin umönnun þeirra sem glíma við langvinna sjúkdóma
-
Dagsetning
03/12 2010
til 03/12 2010
-
Stjórn heilbrigðismála heldur ráðstefnu um eigin umönnun þeirra sem glíma við langvinna sjúkdóma. Markmiðið með ráðstefnunni er að varpa ljósi á ólíka möguleika til að þróa eigin umönnun og færni sjúklinga til að sjá um sig sjálfir þegar þeir glima við langvinna sjúkdóma jafnframt því að skýra þörf og möguleika á norrænu samstarfi á þessu sviði.
-
ADHD - Sjónum beint að ADHD frá félagslegu sjónarhorni
-
Dagsetning
01/12 2010
-
Félagsmálaráðuneytið mun beina sjónum að ADHD frá norrænu sjónarhorni. Á ráðstefnunni verður meðal annars fjallað um tæknileg hjálpartæki og leiðbeiningar um aðrar leiðir en lyfjameðferð.
-
Sambandsríkið Norðurlönd – draumsýn eða raunveruleiki?
-
Dagsetning
04/11 2010
til 04/11 2010
-
Nú er rétti tíminn fyrir Norðurlöndin að mynda eitt ríki, Sambandsríkið Norðurlönd. Með rúmlega 25 milljónir íbúa og sameiginlega stjórnarskrá ættu Norðurlöndin að geta orðið áhrifamikill þátttakandi á alþjóðavettvangi. Velkomin á fyrirlestur Gunnars Wetterbergs þar sem hann mun kynna framtíðarsýn sem birt er í ársriti Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs 2010, sýnina um norræna sambandsríkið. Boðið er upp á léttar veitingar
-
Kreppa eða endurfæðing? Stöðuskýrsla um jafnaðarstefnuna á Norðurlöndum
-
Dagsetning
27/10 2010
til 27/10 2010
-
Staða Jafnaðarmanna á Norðurlöndum er samkvæmt hefðinni sterk. En í dag eru ríkisstjórnir Svíþjóðar, Danmerkur og Finnlands borgaralegar. Hver er ástæðan fyrir þessu minnkandi fylgi? Hvað eru Jafnaðarmenn í hverju landi fyrir sig að gera til að endurnýja stefnu sína? Og, hvers vegna gengur rauðgræna samstarfið í Noregi eins vel og raun ber vitni?
-
Hádegisverðarfundur: Kreppa eða endurfæðing? Stöðuskýrsla um jafnaðarstefnuna á Norðurlöndum
-
Dagsetning
27/10 2010
til 27/10 2010
-
Staða Jafnaðarmanna á Norðurlöndum er samkvæmt hefðinni sterk. En í dag eru ríkisstjórnir Svíþjóðar, Danmerkur og Finnlands borgaralegar. Hver er ástæðan fyrir þessu minnkandi fylgi? Hvað eru Jafnaðarmenn í hverju landi fyrir sig að gera til að endurnýja stefnu sína? Og, hvers vegna gengur rauðgræna samstarfið í Noregi eins vel og raun ber vitni?