Document Actions

Bætt orkunýting

Út frá einkunnarorðunum að umhverfisvænsta orkan sé sú sem ekki er notuð, þá er bætt orkunýting einn af hornsteinum sjálfbærra orkukerfa. Norðurlöndin leggja sérstaka áherslu á að hafa áhrif á stefnuskrá ESB á þessu sviði.

Með aukinni eftirspurn eftir orku, hertum umhverfiskröfum og hækkandi olíuverði eykst þörfin fyrir betri nýtingu orkuauðlinda okkar. Þetta á við um heimili, framleiðslu- og byggingariðnað.

Norðurlöndin eru svæði í fararbroddi hvað varðar stefnumörkun á sviðinu. Löndin leggja áherslu á að hafa áhrif á alþjóðavettvangi, sérstaklega í Evrópu. Sem aðilar að ESB/EES eru Norðurlöndin háð stefnumörkun ESB á þessu sviði, og það er mikill hagur af norrænu samstarfi á öllum stigum, allt frá tillögum til ákvarðana og framkvæmda.

Bæði vinnuhópur um bætta orkunýtingu og stofnuninNorrænar orkurannsóknir starfa á sviðinu.


 

Tengiliður

Anne Sofie Bender
Sími: +45 3396 0274
Tölvupóstur:

Susanna Widstrand
Sími: +45 21717138
Tölvupóstur: