Document Actions

Endurnýjanleg orka

Þróun tækni til að nýta endurnýjanlegar orkulindir er nú ein megin áskorunin á orkusviðinu. Markmiðið er meðal annars að við verðum minna háð jarðefniseldsneyti og að minnka losun skaðlegra lofttegunda út í andrúmsloftið.

Endurnýjanleg orka er á forgangslista allra Norðurlandanna. Jafnvel þó aðstæður landanna frá náttúrunnar hendi séu ólíkar, er grundvöllur fyrir samstarfi á flestum sviðum um þróun nýrrar þekkingar og tækni.

Norrænt samstarf um rannsóknir er þegar til staðar og einnig samstarf innan atvinnulífsins eins það að efla tengslanet um nýsköpun til þróunar tæknilausna til útflutnings.

Vinnuhópur um endurnýjanlega orku á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar á að aðstoða og styðja við starfsemi á Norðurlöndunum um endurnýjanlega orku, með upplýsingamiðlun og koma á samstarfsverkefnum milli landanna. Hópurinn á einnig að markaðssetja tækni og þekkingu Norðurlandanna á sviði endurnýjanlegrar orku í grannríkjunum, innan ESB og á alþjóðamarkaði.


 

Tengiliður

Anne Sofie Bender
Sími: +45 3396 0274
Tölvupóstur:

Susanna Widstrand
Sími: +45 21717138
Tölvupóstur: