Document Actions

Jarðefnaeldsneyti

Norðurlöndin eru mjög háð jarðefnaeldsneyti við orkuframleiðslu. Jarðefnaeldsneyti er samheiti yfir olíu, kol og gas, en þessar tegundir eldsneytis valda mikilli losun koltvísýrings, CO2. Enn hefur ekki verið sett á laggirnar norrænt samstarf sem fjallar sérstaklega um jarðefnaeldsneyti.

Í heiminum eru til kolaauðlindir sem munu endast í aldir og mjög miklar líkur eru á því að jarðefnaeldsneyti haldi áfram að gegna mikilvægu hlutverki við orkuframleiðslu í framtíðinni.

Í iðnaði eru nú gerðar rannsóknir sem miða að því að gera jarðefnaeldsneytið „sjálfbært", meðal annars með því að auka orkunýtingu þeirra orkuvera sem nú þegar eru til staðar, og með söfnun og geymslu CO2 (CSS). Noregur hefur lagt mikla áherslu á CCS og einnig Danmörk en þó ekki í eins miklum mæli. Á alþjóðavettvangi starfar The Carbon Sequestration Leadership Forum, að því að auka þekkingu og tæknikunnáttu um CCS, bæði Danmörk og Noregur eru aðilar að þessu samstarfi.


 

Tengiliður

Anne Sofie Bender
Sími: +45 3396 0274
Tölvupóstur:

Susanna Widstrand
Sími: +45 21717138
Tölvupóstur: