Document Actions

Orkukerfi

Með orkukerfi er átt við framleiðslu, flutning og dreifingu orku. Náið samstarf hefur verið á raforkumarkaðnum milli Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um árabil.

Hér er ekki einungis átt við tengd dreifikerfi, heldur einnig um sameiginlegar stofnanir eins og Nordel [enska] samtök norrænna kerfisveitna, Nordreg  [enska] samstarf norrænu eftirlitsstofnananna og Nord Pool[enska] norrænu rafmagnskauphöllina, sem starfar í þágu norræna raforkumarkaðarins óháð landamærum. Rannsóknir og þróun nýrrar tækni er einnig hluti af norræna orkukerfinu.

Raforkumarkaðshópur Norrænu ráðherranefndarinnar fylgir eftir aðgerðum norrænu orkumálaráðherranna á þessu sviði.

Stór hluti Norðurlandanna er ekki tengdur sameiginlegu orkuneti. Notkun jarðefnaeldsneytis er oft mikil á dreifbýlum svæðum. Þetta er sérstaklega mikil áskorun fyrir norræna orkukerfið.

Árið 2003 samþykktu norrænu orkumálaráðherrarnir að leggja áherslu á að styrkja aðgerðir sem stuðla að sjálfbærri orkudreifingu í dreifbýli á Norðurlöndum og Norðurskautssvæðinu.

Árið 2007 hélt Norræna ráðherranefndin ráðstefnuna Energy from the Edge [enska] í samstarfi við grannríki Norðurlandanna í vestri. Ráðstefnan beindi sjónum sínum að notkun endurnýjanlegra orkugjafa á dreifbýlum svæðum. Sjá einnig Vinnuhóp um málefni dreifðra byggða á vegum norrænu orkumálaráðherranna.


 

Tengiliður

Anne Sofie Bender
Sími: +45 3396 0274
Tölvupóstur:

Susanna Widstrand
Sími: +45 21717138
Tölvupóstur: