Document Actions

Sækja um styrki

Fjármögnunarstyrkir frá NEFCO
NEFCO er alþjóðleg fjármálastofnun, sem sett var á stofn af norrænu ríkjunum. NEFCO fjármagnar aðallega fjárfestingar og verkefni í Rússlandi, Úkraínu, Eistlandi, Lettlandi, Litháen og Hvíta-Rússlandi. NEFCO fjármagnar verkefni og fjárfestingar sem hafa í för með sér jákvæð umhverfisáhrif og eru áhugaverð fyrir Norðurlönd.
Langtíma lán frá Norræna fjárfestingabankanum (NIB)
NIB veitir viðbótarlán til lengri tíma til verkefna, sem stuðla að samkeppnisæfni og umhverfisvernd í samræmi við markmið NIB. NIB býður viðskiptavinum sínum, jafnt einkaaðilum og opinberum, sérsniðin lán og ábyrgðir á samkeppnishæfum kjörum.
Styrkir Norræna þróunarsjóðsins, NDF
NDF styrkir verkefni sem fjalla um loftslagsbreytingar í láglaunalöndum. Styrkir NDF eru ætlaðir til að fjármagna verkefni sem fjalla um aðlögun og skilvirkar aðgerðir tengdar loftslagsbreytingum. NDF styrkir eru einkanlega veittir til að fjármagna tækniaðstoð, s.s. ráðgjafaþjónustu, til fjárfestinga í vörum, vinnu, þjónustu og til að koma til móts við annan kostnað sem tengist tækniaðstoð.
Styrkir Norrænna orkurannsókna
Norrænar orkurannsóknir (NER) styrkja rannsóknir á sviði orkumála sem varða öll norrænu ríkin og geta eflt fjölþjóðlegt rannsóknasamstarf.

 

Tengiliður

Anne Sofie Bender
Sími: +45 3396 0274
Tölvupóstur:

Susanna Widstrand
Sími: +45 21717138
Tölvupóstur: