Þróunin í Rússlandi er mikilvæg fyrir Norðurlöndin. Noregur og Finnland eiga landamæri að Rússlandi og Eystrasaltið og Barentshafið tengja öll Norðurlöndin við stærsta nágranna þeirra. Ríkisstjórnir Norðurlandanna vilja þróa tengslin við Rússland til þess að stuðla að hagvexti og jafnvægi í Norður-Evrópu. Samstarfinu er ætlað að stuðla að lýðræðislegri þróun í Rússlandi og virkri þátttöku Rússlands í samstarfinu á svæðinu.

Norræna ráðherranefndin leggur mikla áherslu á náið samstarf við Rússland. Sérstaklega svæðin í Norðvestur-Rússlandi. Markmið samstarfsins er að stuðla að lýðræðislegri samfélagsþróun, opna fyrir margs konar tengsl yfir landamærin og skapa aðstæður fyrir efnahagssamstarf og verslun.

Með samstarfinu við Norðvestur-Rússland, Eistland, Lettland og Litháen vill Norræna ráðherranefndin styrkja Eystrasaltssvæðið sem kraftmikið svæði í Evrópu.

Forgangsröðunin í samstarfinu við Norðvestur-Rússland koma fram í viðmiðunarreglum um samstarf við Norðvestur-Rússland. Í viðmiðunarreglunum koma fram áherslur og forgangsröðun allra ráðherraefnda og stofnana sem heyra undir Norrænu ráðherranefndina.

Skrifstofur

Norræna ráðherranefndin vinnur meðal annars með svæðisbundnum og staðbundnum stjórnvöldum, samtökum og háskólum í Norðvestur-Rússlandi. Norræn verkefni eru framkvæmd með aðstoð skrifstofa ráðherranefndarinnar á svæðinu.

Ráðherranefndin rekur tvær skrifstofur í Norðvestur-Rússlandi: í Pétursborg [en] og í Kalíningrad [en]. Að auki hefur ráðherranefndin þrjár upplýsingaskrifstofur á Barentssvæðinu: Arkhangelsk, Múrmansk og Petrozavodsk.

Skrifstofurnar og upplýsingaskrifstofurnar gegna mikilvægu hlutverki í framkvæmd samstarfsins á öllum sviðum.

Þekking og tengslanet

Flaggskip norrænna verkefna í Norðvestur-Rússlandi er Þekkingar- og tengslanetaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið með verkefninu er að byggja upp þekkingu og stuðla að uppbyggingu tengslaneta á sviði opinberrar stjórnsýslu, menntunar og rannsókna, hagvaxtar og borgaralegs samfélags.

Verkefnið leggur áherslu á miðlun þekkingar, reynslu og færni. Því er ætlað að mynda tengslanet milli samstarfsaðila á Norðurlöndum og í Norðvestur-Rússlandi. Verkefnið getur verið verkfæri til að ýta úr vör nýju samstarfi sem hefur það markmið að styrkja sterkt og langvarandi samstarf milli stjórnvalda, samtaka, háskóla og annarra á Norðurlöndum og í Norðvestur-Rússlandi.

Með þátttöku í áætluninni fá meðal annars embættismenn, sérfræðingar, stjórnmálamenn, blaðamenn og frjáls félagasamtök tækifæri til að taka þátt í og hafa gagn af sameiginlegum verkefnum Norðurlandanna og Norðvestur-Rússlands.

Frjáls félagasamtök

Frjáls félagasamtök, gegna mikilvægu hlutverki í norrænu samstarfi við Eystrasaltsríkin og Norðvestur Rússland. Þess vegna hefur Norræna ráðherranefndin sett í gang sérstaka áætlun fyrir frjáls félagasamtök.

Hún styður svonefnt þríhliða samstarf þar sem minnst einn aðili er frá Norðurlöndum, einn frá Eistlandi, Lettlandi, Litháen eða Póllandi og einn frá Hvíta-Rússlandi eða Rússlandi
Markmið áætlunarinnar er að efla frjáls félagasamtök í Norðvestur-Rússlandi og Hvíta-Rússlandi og þar með styrkja borgaralegt samfélag.

Alþjóðleg tengsl

Samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við Norðvestur-Rússland er nátengt stefnu ESB í samstarfinu við Rússland, sérstaklega hin svokölluðu "fjögur sameiginlegu rými". Sameiginlegt efnahagslegt rými, rými fyrir frelsi, öryggi og réttlæti, sameiginlegt rými fyrir ytra öryggi og loks sameiginlegt rými fyrir rannsóknir, menntun og menningu. Annar mikilvægur rammi um samstarfið er Norðlæga víddin en Rússland hefur tekið þátt í henni sem samstarfsaðili frá 2006.

Norræn ráðherranefndin leggur mikla áherslu á að samræma aðgerðir í Norðvestur-Rússlandi með öðrum svæðisbundnum samtökum eins og Eystrasaltsráðinu [en], Barentsráðinu [en], Norðurskautsráðinu [en], Helcom [en] og EU.

Þingmannasamstarf

Norðurlandaráð er í nánu samstarfi við þingmenn í Moskvu og Norðvestur-Rússlandi. Samstarf Norðurlandaráðs við rússneska þingmenn á sér tvenn meginmarkmið.

Það fyrsta varðar samkennd í Norður-Evrópu. Landamæri milli þeirra landa sem tilheyra ESB/EES og þeirra landa sem ekki gera það, eru táknmynd mikils munar í velferð og lífsskilyrðum. Norðurlandaráð vinnur að því í samstarfi við rússneska þingmenn að útmá þessi landamæri og smám saman fjarlægja "velferðargjána". Þar með minnkar hættan á andstæðum og neikvæðum afleiðingum.

Hitt markmiðið snýst um þær gífurlegu áskoranir sem Norður-Evrópa stendur andspænis. Ástand Eystrasaltsins, loftslag og lífskjör á Norðurskautinu og Barentssvæðinu, alþjóðleg glæpastarfsemi, mansal, þróun innviða, heilbrigðismál, félagsleg velferð, smitsjúkdómar, lýðræðisþróun og samstarf frjálsra félagasamtaka. Það er mikilvægt verkefni fyrir Norðurlandaráð að styrkja tengsl við þingmenn í Rússlandi og eiga pólitískt frumkvæði á þessum sviðum.

Norðurlandaráð hefur tengsl við rússneska sambandsráðið, Dúmuna, þingmannasamkomu Norðvestur-Rússlands og þingmannasamstarf Sambands óháðra ríkja [en].

Norðurlandaráð fundar reglulega með rússneskum þingmönnum í tengslum við alþjóðlega fundi og ráðstefnur. Ráðið heldur árlega vikulangt styrkjanámskeið sem fyrst og fremst er ætlað þingmönnum frá Norðvestur-Rússlandi.


 

Tengiliður

Ane Kofod Petersen
Sími: +45 3396 0254
Tölvupóstur: