Document Actions
Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á dönsku.

Nyheder

Umdeildar kosningar í Rússlandi
Dec 06, 2011
Alþjóðleg eftirlitsnefnd sem fylgdist með kosningum til Dúmunnar í Moskvu á sunnudag hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fyrirkomulag þeirra er gagnrýnt.
Milljónafjárveiting eflir blaðamennsku í Rússlandi og á Norðurlöndum
Nov 08, 2011
Rússneskir blaðamenn fræðast um norrænt lýðræði og og óháða blaðamennsku og norrænir blaðamenn fá betri vitnskju um Rússland.
Hver á að bera kostnað af öryggismálum á Norðurskautinu?
Nov 04, 2011
Norðurlöndn eru lítil, en norðurhöfin eru gríðarlega víðáttumikil. Þess vegna er brýnt að Norðurlönd vinni betur saman að því að tryggja öryggi á siglingaleiðum við Norðurskautið. Hvers vegna er útgerða- og skipafélögum ekki gert að greiða sinn hluta af reikningnum, spyr Norðurlandaráð á árlegu þingi sem haldið var í Kaupmannahöfn dagana 1. - 3. nóvember.
Baráttan um Norðurskautssvæðið
Jun 09, 2011
Ísinn bráðnar og skipaumferð eykst. Loftslagið breytist og aðsókn eykst í að nýta náttúruauðlindir. En hvert stefnir Norðurskautssvæðið og hvaða hlutverki gegna norrænu ríkin í kapphlaupinu um miðnætursólina?
Vistaskipti norrænna og rússneskra þingmanna
May 13, 2011
Sendinefnd þingmanna úr Norðurlandaráði undir forystu Sivjar Friðleifsdóttur, formanns velferðarnefndar, heimsækir Pskov og Pétursborg dagana 16.-20. maí næstkomandi.
Norðurlandaráð í kjarnorkueftirliti
Apr 01, 2011
Umhverfisnefnd Norðurlandaráðs sendir eftirlitsmenn til að skoða kjarnorkuver í Rrússlandi og á Bretlandseyjum Sænska þingkonan Ann-Kristine Johansson og formaður nefndarinnar segir mikilvægt að fylgja eftir kröfum um öryggi í kjarnorkuverum í grannríkjunum.
Samstarf frjálsra félagasamtaka. Nú er hægt að sækja um norræna styrki
Mar 01, 2011
Á hverju vori er að sækja um verkefnastyrki hjá áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir frjáls félagasamtök. Krafa er gerð um að a.mk. þrjú frjáls félagasamtök taki þátt í verkefninu og að ein samtök séu norræn, ein frá Rússlandi, Hvíta-Rússlandi, Póllandi eða Eystrasaltsríkjunum.
Norrænar merkingar vekja athygli
Feb 23, 2011
Á síðustu stundu var því bætt við í lokayfirlýsingu þingmannaráðstefnu norrænu víddarinnar í Tromsø þann 23. febrúar að bæta merkingar á matvælum og tilmæli um að takmarka transfitusýru í matvælum. . Fulltrúar á ráðstefnunni voru frá Rússlandi, ESB, Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum.
Norðurlandaráð, ESB og Rússar funda um uppbyggingu á norðurslóð
Feb 17, 2011
Fulltrúar norrænu ríkjanna og Eystrasaltsríkjanna hittast á fundi með fulltrúum Rússlands, ESB, og fulltrúum stjórnvalda á Norðurskauts- og Barentssvæðinu þann 22. Febrúar. Markmiðið er að ræða brýn málefni, s.s. mengun í Eystrasalti, umbætur á siglingaleiðum í norðurhöfum sem tengja Evrópu og Asíu, orkustefnu og önnur sameiginleg hagsmunamál.
Breytingar í utanríkisstefnu
Dec 06, 2010
Norðurlöndin eiga ekki með sér opinbert samstarf um utanríkismál. Samt sem áður bendir ýmislegt til þess að norrænt varnar- og utanríkismálasamstarf sé að aukast. ESB leggur einnig mikla áherslu á þessi mál. Í Analys Norden er fjallað um hraðar breytingar sem eiga sér stað í stjórnmálum.
Norrænt verkefni kemur ungum afbrotamönnum á rétta braut
Nov 26, 2010
Átta ungir afbrotamenn frá Norðvestur-Rússlandi á aldrinum 15 til 17 ára hafa hafið nám og tveir hafa fengið atvinnu. Það er eitt af því sem kom út úr tilraunaverkefni á vegum Juvenlie Justice, sem er eitt af mörgum verkefnum sem Norræna ráðherranefndin vinnur með frjálsum félagasamtökum (NGO) í ríkjunum við Eystarsalt.
Aukið samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna
Nov 03, 2010
Sérfræðingaskýsla um samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja var lögð fram á Norðurlandaráðsþingi í dag. Norrænu utanríkisráðherrarnir eru fylgjandi auknu samstarfi ríkjanna. Margir þingmenn óttast hins vegar að það leiði til hernaðarsamstarfs.
Skýrsla efnahagsráðgjafa: Aukið samstarf myndi gagnast Norðurlöndum
Aug 27, 2010
Ný skýrsla frá efnahagsráðgjöfum bendir á kosti þess að auka samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.
Samkeppni: Auglýst eftir hagnýtum lausnum á loftslagsvandanum
Jun 21, 2010
Býr stofnun þín yfir hagnýtum lausnum sem sveitarfélög og aðrir svæðisbundnir framkvæmdaaðilar geta nýtt til að vinna gegn loftslagsbreytingunum? Sambönd Sveitarfélaga í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð standa, í samstarfi við Norrænu ráðherranefndina, fyrir alþjóðlegri samkeppni með það að markmiði að laða fram nýja þekkingu sem enn hefur ekki verið nýtt, vinnuaðferðir og tækni sem nýta má í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.
Norðurlandaráð: Eystrasaltsstefnan þarfnast aðkomu norðlægu víddarinnar
Jun 01, 2010
Margir líta á nýja Eystrasaltsstefnu ESB sem innanhúsmál hjá ESB,en hún þarfnast annarar víddar, sérstaklega á sviði orkumála. Þetta voru skilaboðin sem Norðurlandaráð sendi frá sér á Baltic Development Forum þann 1. júní.
Karen Ellemann: Ekki þörf fyrir nýtt Norðurskautssamkomulag
May 26, 2010
Það er engin þörf á nýju samkomulagi um stjórnun Norðurskautssvæðisins eins og sumir halda fram. Þetta sagði Karen Ellemann, umhverfis- og samstarfsráðherra Danmerkur, á alþjóðlegri Norðurskautsráðstefnu í Kaupmannahöfn á miðvikudag.
Fundað í Björgvin um orkunotkun Norðurlanda og Rússlands
May 24, 2010
Orkunýting verður aðalumræðuefnið á fundi Norðurlandaráðs og fulltrúa rússnesku Dúmunnar þegar þeir funda í Björgvin dagana 25.-27. maí. Þingmennirnir munu hitta sérfræðinga frá Statoil og háskólanum í Björgvin og heimsækja Oseberg-olíuborpallinn.
Mikill norrænn áhugi á Rússlandi
May 13, 2010
Þann 16. maí leggja 15 fulltrúar Norðurlandaráðs land undir fót og heimsækja Leningrad- og Kalíníngradsvæðin í Rússlandi. Þar munu þeir funda með rússneskum starfssystkinum sínum og kynna sér brýnustu verkefni í þessum héruðum Rússlands.
Hvít-Rússar horfi til norræna velferðarlíkansins
Mar 23, 2010
Geta Hvít-Rússar notfært sér norrænar lausnir sem fyrirmynd við framtíðaruppbyggingu í landinu? Leitað var svara við þessari spurningu á sögulegum fundi þingmanna frá Hvíta-Rússlandi, Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum í höfuðborginni Minsk dagana 22.-23. mars.
Grein eftir forseta Norðurlandaráðs: Ný en ógreinileg skilaboð frá Rússum
Dec 16, 2009
Rússar eiga enn nokkuð í land með að lýðræðið sé sjálfgefið. Framtíðin mun leiða í ljós hvort tímabil pólitískra umbreytinga renni upp eftir kreppuna, en hún hefur með lækkandi hráefnisverði verið Rússum dýr. Mikilvægt er að norrænir stjórnmálamenn styrki tengsl sín við rússneska starfsbræður. Þetta skrifar Sinikka Bohlin forseti Norðurlandaráðs, í dagblaðið Västerbottens-Kuriren.