um sjálfbæra þróun.
Norðurlöndin telja sjálfbæra þróun vera eitt af mikilvægustu verkefnum sem þau standa andspænis. Hnattvæðing, þróun upplýsingasamfélagsins, íbúar sem eldast ásamt óviðunandi neyslu- og framleiðslumynstrum sem valda t.d. loftslagsbreytingum, hafa í för með sér bæði áskoranir og tækifæri fyrir Norðurlöndin. Til þess að leysa þessi úrlausnarefni og notfæra sér þessi tækifæri er þörf fyrir þverfaglegar norrænar aðgerðir sem samþætta grundvallarregluna um sjálfbæra þróun.
