- Info
Sækja um styrki
-
Nopef styrkir undirbúningsrannsóknir
-
Markmið sjóðsins er að styrkja og efla alþjóðlega samkeppnishæfni norrænna fyrirtækja með því að taka þátt í fjármögnun undirbúningskannana, sem stuðla að því að efla alþjóðavæðingu norrænna fyrirtækja. Nopef fjármagnar undirbúningsrannsóknir lítilla og meðalstórra norrænna fyrirtækja áður en þau hefja starfsemi í löndum utan ESB og EFTA.
-
Styrkir Norræna þróunarsjóðsins, NDF
-
NDF styrkir verkefni sem fjalla um loftslagsbreytingar í láglaunalöndum.
Styrkir NDF eru ætlaðir til að fjármagna verkefni sem fjalla um aðlögun og skilvirkar aðgerðir tengdar loftslagsbreytingum. NDF styrkir eru einkanlega veittir til að fjármagna tækniaðstoð, s.s. ráðgjafaþjónustu, til fjárfestinga í vörum, vinnu, þjónustu og til að koma til móts við annan kostnað sem tengist tækniaðstoð.
-
Styrkir Norrænu ráðherranefndarinnar úr áætlun um sjálfbæra þróun á Norðurlöndunum 2009-2012
-
Norræna ráðherranefndin hefur veitt styrki til verkefna sem stuðla að framkvæmd norrænnar stefnu um sjálfbæra þróun á sviði; loftslagsmála og endurnýjanlegra orkugjafa; sjálfbærrar framleiðslu og neyslu; velferðarþjóðfélagsins; auk menntunar og rannsókna, þátttöku borgaranna og staðbundinnar sjálfbærnistefnu. Ekki verður auglýst eftur umsóknum um styrki á árinu 2012.
