Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á dönsku.
- Info
Tidligere arrangementer
-
Ráðstefna: Nýting og stjórnun norrænna hafsvæða nú og í framtíðinni
-
Dagsetning
15/11 2011
til 16/11 2011
-
Norðurlandahúsinu, Þórshöfn, Færeyjum, dagana 15. og 16. nóvember 2011. Vinnuhópur Norrænu ráðherranefndarinnar um vistkerfi vatnabúskapar (AEG) býður til framtíðarvinnustofu með það að markmiði að þróa sameiginlega sýn á nýtingu og stjórnun norrænna hafsvæða. Skráningarfrestur er til föstudags 28. október 2011.
-
Fiskeldisráðstefna
-
Dagsetning
04/10 2011
til 06/10 2011
-
Fiskeldi er sú grein matvælaiðnaðar sem vaxið hefur hraðast í heiminum á síðustu tveimur áratugum. Öfugt við annars staðar i heiminum, hefur framleiðslan innan Evrópusambandsins, sérstaklega á Eystrasaltssvæðinu, staðnað og jafnvel minnkað aðeins síðasta áratuginn. Markmiðið með ráðstefnunni er að mynda vettvang fyrir stjórnvöld, fulltrúa fiskeldisiðnaðarins, vísindamenn og aðra sem málið varðar, til að ræða saman um tækifæri og úrlausnarefni á sviði fiskeldis í Norður-Evrópu.
-
NCM-ESB námstefna: „An Arctic Agenda"
-
Dagsetning
08/04 2011
til 08/04 2011
-
„An Arctic Agenda" námstefnan beinir sjónum að því hvernig ESB getur haft áhrif á Norðurheimskautssvæðinu. Umræðuefni á námstefnunni verða; umhverfismál, efnahagsmál og nýsköpun og borgaralegt samfélag.
Námstefnan er haldin í kjölfar tveggja ráðstefna um Norðurskautssvæðið sem Norræna ráðherranefndin stóð fyrir: „Common Concern for the Arctic" og „Arctic - Changing Realities". Á ráðstefnunni „Common Concern for the Arctic” hófust jákvæðar viðræður milli ESB og Norrænu ráðherranefndarinnar um hugsanlegt samstarf um málefni Norðurskautssvæðisins.
Námstefnan er afrakstur þessara viðræðna og er markmiðið með henni að kynna þátttakendum nýjustu þekkingu og lausnir á þeim úrlausnarefnum sem blasa við á Norðurskautssvæðinu.
-
Ráðstefna - The pelagic complex in the Northeast Atlantic Ocean
-
Dagsetning
07/09 2010
til 09/09 2010
-
Dagana 7. - 8. september 2010 verður haldin ráðstefna um uppsjávarveiðar í Þórshöfn í Færeyjum "Challenges and possibilities in the pelagic sector - Looking towards the future". Á ráðstefnunni verður rætt um skiptingu veiðiheimilda á síld, makríl, loðnu og kolmunna í Norður-Atlantshafi.
-
Changing Seas - Vinnustofa um áhfrif loftslagsbreytinga á vistkerfi sjávar
-
Dagsetning
09/03 2010
til 10/03 2010
-
Markmiðið með vinnustofunni er að leiða saman vísindamenn, stjórnendur og aðra áhugasama um loftslagsbreytingar og vistkerfi sjávar. Á tveggja daga vinnustofu munu um 20 fyrirlesarar kynna nýjustu upplýsingar og rannsóknir og þátttakendur munu eiga kost á því að koma á framfæri nýjum hugmyndum og tillögum til Norrænu ráðherranefndarinnar.
-
Fundur í Norðurlandaráði, 26.-27. janúar 2010, Danmörku
-
Dagsetning
26/01 2010
til 27/01 2010
-
Fiskveiðistefna ESB, jafnréttismál og formennskuáæltun Dana í Norrænu ráðherranefndinni verða á dagskrá þegar þingmenn í Norðurlandaráði funda dagana 26.-27. janúar í Kaupmannahöfn.
-
Námstefna um stjórnun hafsvæða
-
Dagsetning
25/11 2009
til 25/11 2009
-
-
Hliðarviðburður til að kynna mikilvægi líffræðilegs fjölbreytileika og matvælaöryggis á tímum loftslagsbreytinga, FAO, Rom
-
Dagsetning
18/11 2009
til 18/11 2009
-
Norræna ráðherranefind, Norræna erfðaauðlindastofnunin (NorGen) í samstarfi við FAO bjóða til hliðarviðburðar með það að markmiði að kynna mikilvægi líffræðilegs fjölbreytileika og matvælaöryggis á tímum loftslagsbreytinga .
-
Norrænar hagtölur 2009
-
Dagsetning
22/10 2009
til 22/10 2009
-
Í tilefni af útgáfu ritsins Norrænar hagtölur 2009 býður Norræna ráðherranenfdin til hádegisverðarfundar í Store Strandstræde 18, 1255 Kaupmannahöfn K.
Marianne Jelved fullrúi rótækra vinstri flokksins í Danmörku og fyrrum efnahags- og samstarfsráðherra tekur þátt í fundinum og fjallar um nýjustu hagtölurnar frá dönsku sjónarhorni, sérstaklega með tilliti til stefnu Norrænu ráðherranefndarinnar hvað varðar sjálfbæra þróun.
Blaðamaðurinn Trine Sick, sem starfaði áður hjá danska ríkisútvarpinu stýrir fundinum.
Ulla Agerskov frá dönsku Hagstofunni, sem ritstýrði ritinu mun einnig taka þátt í fundinum..
Skráningu á fundinn lýkur þriðjudaginn 20. október kl. 14:00 skráning hjá: loha@norden.org.
-
Ráðstefna um fiskeldi í ferskvatni
-
Dagsetning
13/10 2009
til 14/10 2009
-
-
Fimaglow vinnustofa(Stjórnun fiskveiða við hlýnun jarðar)
-
Dagsetning
17/09 2009
til 18/09 2009
-
FIMAGLOW er norrænt verkefni, þátttakendur eru frá Noregi, Íslandi, Danmörku og Svíþjóð.. Markmiðið með FIMAGLOW er að rannsaka áhrif hlýnunar jarðar á fiskveiðar á norðurslóðum.
-
Árangursrík fiskveiðastjórnun
-
Dagsetning
27/08 2009
til 28/08 2009
-
Árangursrík fiskveiðastjórnun, Hagfræðistofnun Háskóla Íslands heldur ráðstefnuna. Ráðstefnan verður haldin dagana 27.-28. ágúst, 2009.