Document Actions

Yfirlýsingar

Växjö-yfirlýsingin: Selurinn og samfélagið
Ráðherrar Danmerkur, Finnlands, Færeyja, Grænlands, Íslands Noregs, Svíþjóðar og Álandseyja, sem fara með málefni fiskveiða, landbúnaðar, matvæla og skógræktar ræddu á ráðherrafundinum þann 26. júní 2008 um verndun og sjálfbæra nýtingu á selastofnunum í Eystrasaltinu og Norður Atlantshafinu, en umræða um sel fer einnig fram innan ESB.
Växjö-yfirlýsingin: Sjálfbærar fiskveiðar tryggja mat til framtíðar
Ráðherrar Danmerkur, Finnlands, Færeyja, Grænlands, Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Álandseyja, sem fara með málefni fiskveiða, landbúnaðar, matvæla og skógræktar ræddu á fundi sínum þann 26. júní hvernig stýra megi fiskveiðum og koma til móts við kröfur neytenda um sjálfbærar fiskveiðar. Sjálfbærni í breytilegu loftslagi gerir kröfu um stjórnun fiskveiða geti aðlagað sig breyttum aðstæðum. Þar sem Norðurlöndin eru sérlega viðkvæm fyrir loftslagsbreytingum er norrænt samstarf milli stjórnenda, atvinnulífs og neytenda um aðlögun stjórnkerfis mikilvægt.