Norrænt samstarf um þróun skapandi iðnaðar
Skapandi iðnaður er mikilvægur og ört stækkandi hluti hagkerfis heims. Það er enginn vafi á að skapandi atvinnugreinar eru nú þegar sterkar en möguleikar þeirra eru enn meiri. Þörf er á virku norrænu þróunar- og stefnumótunarstarfi svo Norðurlöndin geti kynnt sig sem forystusvæði á sviði skapandi iðnaðar.
Hvað er skapandi iðnaður?
Með hugtakinu „skapandi iðnaður“ er vísað til þess sem sprottið er úr sköpun einstaklinga, þekkingu og hæfileikum, og sem hefur í för með sér velferðar- og atvinnutækifæri í gegnum framleiðslu og nýtingu á huglægri getu.
Þannig má segja að skapandi iðnaður skiptist í þrettán lykilgreinar: auglýsingar, byggingarlist, list og fornmuni, handverk, hönnun, tískuhönnun, kvikmyndir, gagnvirk afþreyingartölvuforrit, tónlist, sviðslist, útgáfu, forrit auk sjónvarps og útvarps.
KreaNord
Samstarf Norðurlandanna um skapandi iðnað hófst árið 2008. Í fyrsta sinn starfa saman atvinnu- og menningargreinar og samstarf þeirra fer fram í gegnum þverfaglegan stýrihóp sem nefnist KreaNord .
Í stýrihópnum eru fulltrúar frá ráðuneytum og stjórnvöldum á Norðurlöndunum og
Í KreaNord safnast saman reynsla, þekking og framtíðarsýnir um þróun bæði á sviði atvinnuvega og menningar.
KreaNord stuðlar að auknu samræmi milli Norðurlanda og byggir á norrænu grænbókinni um skapandi iðnað [en] [pdf] .
Starfsemi hópsins beinist að fjórum sviðum:
- Starfsemi tengslaneta
- Þróunarverkefnum
- Stefnumarkandi tillögum
- Kynningarverkefnum
Starf vinnuhópsins ber ekki árangur án framlags frá skapandi aðilum á Norðurlöndum, og þess vegna tengist breiður viðmiðunarhópur starfi KreaNord. Viðmiðunarhópurinn á að taka þátt í að skilgreina aðgerðir og tryggja tengsl við þjóðlöndin til þess að stuðla að sjálfbæru þróunarstarfi og langtíma samstarfi. KreaNord starfar einnig náið með norrænum starfsgreinasamtökum eins og t.d. Nýja norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum, Norrænu tölvuleikjaáætluninni, Nordisk Musik eksport og öðrum starfsgreinasamtökum sem hafa eða vilja mynda samtök á norrænum vettvangi.
KreaNord er hluti af hnattvæðingarstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar, sem hófst að frumkvæði norrænu forsætisráðherranna.
Norrænt samstarf
Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna á sviði skapandi iðnaðar er stjórnað af norrænu menningar- og atvinnumálaráðherrunum. Embættismannanefnd um menningarsamstarf og atvinnustefnu stjórnar framkvæmdinni sjálfri.
Samstarf norrænu þinganna á sviði skapandi iðanaðar er rekið í samstarfi við atvinnu- og menningar- og menntanefndirnar.
Stefnumarkandi tilmæli KreaNord
Atvinnu- og mennigarmálaráðherrarnir samþykktu haustið 2010 að norrænt samstarf skyldi leggja áherslu á eftirfarandi stefnumið:
1) Að efla stefnumarkandi samstarf og mannaskipti innan skapandi menningar og iðnaðar á Norðurlöndum og við aðrar greinar með það að markmiði auka verðmætasköpun, nýsköpun og hagvöxt.
2) At stuðla að nýjum tækifærum til að bæta aðgang að alþjóðamörkuðum, fjármögnun og aðkomu óskyldra fjárfesta að menningar- og sköpunariðnaði á Norðurlöndum.
3) At að efla menningu og sköpun á öllum sviðum menntunar á Norðurlöndum og efla vægi frumkvöðlastarfs og starfshæfni í öllum námsleiðum á sviði menningar og lista.
4) Að koma á fót norrænum menningarmarkaði með því að þróa þverfaglega hæfni til þess að efla dreifingarsvæði norrænnar menningar og sköpunarvöru og -þjónustu.
