Document Actions

Samstarf á sviði skattamála

Norrænt samstarf á sviði skattamála er aðallega af tvennum toga. Annars vegar verkefni sem auðvelda norrænum þegnum að búa og starfa í öðrum norrænum ríkjum og hins vegar verkefni með það að markmiði að samhæfa og efla Norðurlöndin í alþjóðlegu samhengi.

Hvers vegna skattar?

Skattar eru notaðir til að greiða sameiginlegan kostnað samfélagsins. Þeir hafa dagleg áhrif á borgarana, til dæmis þegar þeir kaupa matvæli, bensín á bílinn eða taka við barnabótum.

Skattlagning er meðal annars notuð til að greiða fyrir sameiginleg verkefni eins og til dæmis umönnun, skóla, varnir og almannatryggingakerfi.

En það eru einnig aðrar ástæður fyrir því að ríkið innheimtir skatta. Ein ástæðan er að stuðla að þjóðhagslegri skilvirkni. Eitt slíkt dæmi er skattur á tóbak og áfengi sem er notaður til að vega upp á móti þeim afleiðingum sem tóbak og áfengi hafa á heilsufar fólks.

Þetta á einnig við um losun sem hefur neikvæð áhrif á umhverfið og er því skattlögð í tengslum við framleiðslu á vörum. Skattar eru einnig notaðir til að mynda efnahagslegan jöfnuð milli ýmissa hópa í samfélaginu.

Með skattlagningu er hægt að dreifa fjármunum til hópa sem hafa þörf fyrir efnahagslega aðstoð. Dæmi um slíka jöfnun er greiðsla barnabóta og sjúkradagpeninga.

Skattlagning er því ekki einungis tekjulind til að greiða opinber útgjöld, heldur einnig eitt mikilvægasta verkfærið til að móta stefnu hins opinbera.

Norrænt samstarf um skattamál

Norrænt samstarf um skattamál á sér stað í tvennum tilgangi.

Í fyrsta lagi til að auðvelda norrænum borgurum og fyrirtækjum að starfa í öðrum löndum og styrkja Norðurlöndin sem eitt markaðssvæði. Dæmi um slíkt samstarf er norræni tvísköttunarsamningurinn, sem gerður var til þess að koma í veg fyrir að sömu tekjur eða eignir séu skattlagðar tvisvar.

Vefgáttir

Norræna skattagáttin er eitt dæmi um samstarf, Nordisk eTax, en markhópur hennar eru einstaklingar sem vilja setjast að norrænu ríki en eru með tekjur og eignir í öðru norrænu ríki Nordisk eTax var þróað í samstarfi Norrænu ráðherranefnarinnar og skattayfirvalda í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Noregi og á Íslandi, en þessir aðilar bera sameiginlega ábyrgð á innihaldi gáttarinnar.

Einnig er vert að benda gáttina Halló Norðurlönd í þessu samhengi. Gáttin er upplýsingatorg Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem starfa þvert á landamæri Norðurlanda og hafa þörf fyrir upplýsingar og aðstoð.

Öresund Direkt, vefgátt sem meðal annars er fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni gegnir líku hlutverki og Eyrarsundssvæðið.

Eftir því sem samþætting á Norðurlöndum verður greinilegri á mörgum svæðum eins og Eyrarsundssvæðinu, Dalsland og Tornedalen eykst mikilvægi norræns samstarfs á skattasviðinu, þar sem áhrif á íbúa vaxa stöðugt.

Alþjóðleg skattamál

Í öðru lagi er tilgangur samstarfsins er að samræma aðgerðir Norðurlandanna á alþjóðavettvangi með það að markmiði að styrkja stöðu norrænna sjónarmiða. Dæmi um slíkt samstarf eru sameiginlegar samningaviðræður við sjálfstæðar fjármálamiðstöðvar, nánar á: förhandlingsarbetet med finansiella offshore centers.

Vinnan hófst árið 2006 með það að markmiði að samræma tilraunir Norðurlandanna til að gera upplýsingaskiptasamninga við skattasvæði sem nefnd hafa verið skattaskjól. Norðurlöndin samræma nú samingaumleitanir innan Norrænu ráðherranefndarinnar.

Þannig verður samningsstaða Norðurlandanna sterkari og kostnaðurinn minni. Árangur varð af verkefninu er að gerðir hafa verið tvíhliða samningar: bilaterala informationsutbytesavtal við fjölda ríkja.

Tengt efni
  • Norræna ráðherranefndin um efnahags- og fjármálastefnu (MR-FINANS) (Samtök)

    Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um efnahags- og fjármál er stjórnað af norrænu fjármálaráðherrunum, sem mynda ráðherranefndina MR-FINANS. Samstarfinu er ætlað að gæta norrænna hagsmuna á alþjóðavettvangi og stuðla að efnahagslegri samættingu á alþjóðavettvangi.

  • Flytja innan eða til Norðurlanda

    Upplýsinar fyrir þá sem ætla að flytja eða hafa þegar flutt til Norðurlanda. Hverju þarf að huga að, og hvaða stjórnvöld þarf að hafa samband við?


 

Tengiliður

Ola Yndeheim
Sími: +45 33 96 03 21
Tölvupóstur: