- Info
Vefslóðir
-
Fréttabréfið Atvinnulíf á Norðurlöndum
-
Atvinnulíf á Norðurlöndum er fréttabréf ætlað þeim sem stjórna, þróa og stunda rannsóknir á atvinnulífi á Norðurlöndum. Í blaðinu eru birtar fréttir og staðreyndir, greiningar, greinar og umræður auk frásagna úr atvinnulífinu. Rannsóknastofa um atvinnumál í Ósló gefur út ritið Atvinnulíf á Norðurlöndum, fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar.
-
Hjúkrun á Norðurlöndum
-
Hjúkrun á Norðurlöndum er norrænt tímarit, sem samstarfsnet hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (SSN) gefur út. Í ritinu er fjallað um hjúkrunarfræði og þróun sem miðar að því að auka gæði í hjúkrun. Hjúkrun á Norðurlöndum er vettvangur þar sem norrænir hjúkrunarfræðingar eiga þess kost að birta fræðigreinar og stuttar greinar á dönsku, norsku, sænsku og ensku.
Tímaritið er ætlað hjúkrunarfræðingum sem stunda rannsóknir, eru í stjórnunarstöðum og/eða kenna hjúkrun og öllum faghópum sem áhuga hafa á þróun fræða og rannsókna innan hjúkrunar.
-
Norræna ráðherranefndin um menntun og rannsóknir (MR-U)
-
Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um rannsóknir og menntun er stjórnað af norrænu ráðherrunum sem fara með málefni menntamála og rannsókna, saman mynda þeir MR-U. Ráðherranefndin vinnur að því að Norðurlöndin verði í fararbroddi hvað varðar þekkingu og samkeppnishæfni.
