Efnhagslíf- og ríkisfjármál
Samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði efnahags- og ríkisfjármála skal stuðla að efnahagsmálastefnu sem felur í sér stöðuga og heilbrigða efnahagsþróun, efnahagsvöxt til lengri tíma litið og atvinnu fyrir alla. Samstarfið er undirstaða þess að hægt sé að fylgja eftir norrænum hagsmunum á alþjóðavettvangi og að stuðla að aukinni alþjóðlegri efnahagssamþættingu jafnt innan Norðurlandanna sem milli Norðurlandanna og annarra ríkja Evrópu.
