Document Actions
Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á dönsku.

Nyheder

Minnkandi lestraráhugi og -færni norrænna ungmenna
Jan 23, 2012
Lestraráhugi nemenda í norrænu ríkjunum hefur minnkað, sérstaklega hjá drengjum. Meiri áhersla ætti að vera á bókmenntir sem höfða bæði til drengja og stúlkna í kennslunni, segja sérfræðingar sem hafa rannsakað norrænar niðurstöður PISA-skýrslunnar að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar.
Íslensk-norræn veforðabók gefin út
Nov 16, 2011
ISLEX íslenskt-norrænt veforðabókarverkefni, orðabók til birtingar á vefnum með íslensku sem grunntungumál og þýðingum á sænsku, norsku og dönsku, er orðin að veruleika og var hún formlega opnuð í dag á degi íslenskrar tungu. Uppflettiorð í bókinni eru 50.000.
Pólitískar öfgar á Norðurlöndum
Oct 27, 2011
Við erum vön því að verða vitni að pólitísku ofbeldi úr fjarlægð, sem birtingarmynd samskiptahátta sem eru ólíkir norrænum hefðum. En undanfarin ár hafa pólitískar öfgar í auknum mæli orðið áberandi, einnig á Norðurlöndum. Nýjasta og versta dæmið er harmleikurinn í Noregi sumarið 2011.
Nýbreytni í tungumálanámi fær verðlaun Norrænu ráðherranefndarinnar
Oct 11, 2011
Samband Norrænu félagana og kvikmyndafyrirtækið Snöball Film hljóta verðlaun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir góð verkfæri í tungumálanámi. Bæði verðlaunaverkefnin eru nýskapandi vefsetur sem miða að því að styrkja norrænan tungumálaskilning barna og ungmenna. Verðlaunin nema alls 500.000 dönskum krónum, eða jafnvirði rúmlega 10,5 milljónum íslenskra króna.
Loftslagsráðstefna í skólanum – hlutverkaleikur fyrir norræna nemendur
Sep 20, 2011
Á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Suður-Afríku í desember 2011 hittast þjóðaleiðtogar til að ræða lausnir á loftslagsvandanum. Norræna ráðherranefndin styrkir verkefnið „Loftslagsráðstefna í skólanum“, þar sem nemendur geta tekið að sér hlutverk þátttakenda á loftslagsráðstefnunni í Durban.
Norrænn loftslagsdagur 2011 – málefni tengd loftslagi og mat eru í brennidepli
Jun 01, 2011
Hvaða hráefni eru loftslagsvæn og hvernig eru matvæli sem við neytum framleidd og flutt á milli staða? Menntamálaráðherrar Norðurlanda bjóða þetta árið til Norræna loftslagsdagsins þann 11.11.11. Markhópurinn eru nemendur, kennarar, nemar og leiðbeinendur alls staðar á Norðurlöndum.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fimmtug
Mar 15, 2011
Á þessu ári er hálf öld liðin frá því að stofnað var til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Haldið verður upp á þau tímamót með nýrri heimasíðu, farandsýningu og venjubundinni verðlaunaafhendingu. Bókmenntaverðlaunin sem eru meðal þeirra merkustu á Norðurlöndum vekja enn athygli á menningu og tungumálum grannríkja okkar.
Norræna ráðherranefndin efnir til samkeppni um kennslutæki til að efla norrænan málskilning
Mar 01, 2011
Norræna ráðherranefndin efnir til samkeppni um þróun tækja sem nýta má til að efla norrænan málskilning barna og ungmenna á Norðurlöndum, í dönsku, norsku og sænsku.
Þátttaka barna og ungs fólks gríðarlega mikilvæg fyrir Norðurlönd
Jan 26, 2011
Stuðla þarf að aukinni þátttöku barna og æskufólks í norrænu samstarfi. Því þarf að leggja meiri áherslu á norrænan málskilning, ekki síst í Finnlandi. Þetta er eitt af þeim forgangsmálum sem Jan Vapaavuori kynnti í formennskuáætlun Finna í Norrænu ráðherranefndinni á janúarfundi Norðurlandaráðs í Esbo í Finnlandi
Bæta þarf norrænan tungumálaskilning
Nov 04, 2010
Olemic Thommessen úr flokkahópi hægrimanna í Norðurlandaráði hefur lýst yfir áhyggjum af því að ekki sé farið eftir norræna tungumálasáttmálanum á Norðurlöndum.
Loftslagsmál verða í brennidepli í formennskuáætlun Finna í Norrænu ráðherranefndinni 2011
Nov 02, 2010
Finnar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2011. Þeir hafa ákveðið að á formennskuári verði megináhersla lögð á alls slags aðgerðir til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. Markmið er að styrkja stöðu Norðurlanda sem brautryðjenda og sameinaðs afls í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.
Tungumálaátak á að styrkja norræna menningarsamkennd
May 05, 2010
Ungt Norræna ráðherranefndin og norrænu ríkisstjórnirnar ýta nú úr vör stóru tungumálaátaki.
Efla þarf kennslu í dönsku, sænsku og norsku
May 05, 2010
Niðurstaða norrænnar tungumálaráðstefnu sem haldin var dagana 27.-28. apríl var að nauðsynlegt væri að grípa til aðgerða til að tryggja norrænan tungumálaskilning. Að mati sérfræðinga eiga danska, sænska og norska að vera á stundatöflu nemenda frá 1. bekk grunnskóla
”Sænskukunnátta forsenda öflugs norræns samstarfs"
Jan 21, 2010
Efla verður skandínavískan málskilning á Norðurlöndum. Það er skoðun Jan Vapaavuori samstarfsráðherra Finnlands.
Formennska Íslands í Norðurlandaráði 2010
Jan 01, 2010
Þegar Íslendingar taka við formennsku þingmannasamstarfsins í Norðurlandaráði um áramót, með Helga Hjörvar sem forseta í fararbroddi, verða öryggismál, hafsvernd og menningarsamstarf í forgangi.
”Finnlandssænska aðaltungumál í norrænu sambandsríki”
Dec 02, 2009
Sú sænska sem töluð er í Finnlandi, þ.e.a.s. finnlandssænskan, ætti að vera megintungumálið í norrænu sambandsríki. Þetta er skoðun Jan Vapaavuori samstarfsráðherra Finnlands sem sat námstefnu um tungumál sem Norræna stofnunin í Finnlandi stóð fyrir á þriðjudag.
Svíþjóð bregst norrænu tungumálunum
Oct 29, 2009
Öll Norðurlöndin, nema Svíþjóð, hafa gert átak í að auka kunnáttu í norðurlandatungumálunum. Norðurlandaráð hvetur sænsku ríkisstjórnina til að styrkja kennslu í nágrannatungumálum í samræmi við Norrænu tungumálayfirlýsinguna.
Ný norræn tungumálaherferð
Oct 28, 2009
Sameiginleg norræn tungumálaherferð á að auka færni barna og ungs fólks til að skilja og eiga samskipti við hvert annað á einu af skandínavísku tungumálunum þremur, dönsku, norsku og sænsku. Ráðgert er að tungumálaherferðinni verði hleypt af stokkunum í febrúar 2010 og að hún standi yfir allt árið.
ESB verðlaunar norrænt tungumálaverkefni
Oct 26, 2009
Stjórnandi tungumálaverkefnis Norrænu ráðherranefndarinnar "De Nordiske Sprogpiloter" hlaut nýlega tungumálaverðlaun ESB árið 2009. Lis Madsen verkefnisstjóri, hlýtur verðlaunin fyrir framlag sitt til eflingar norræns tungumálaskilnings.
Nýr forseti vill berjast gegn atvinnuleysi ungs fólks
Oct 25, 2009
Atvinnuleysi ungs fólks verður í brennidepli í Norðurlandaráði æskunnar (UNR) árið 2010. Sunnudaginn 25. október var Minna Lindberg einróma kjörin nýr forseti Norðurlandaráðs æskunnar.
Next 20 items 1 | 2 | 3 | 4 ... 6