- Info
Fyrri viðburðir
-
Vinnustofa í skandínavískum tungumálum
-
Dagsetning
29/03 2012
til 29/03 2012
-
Norræna félagið og fleiri halda vinnustofu um kennslu í tungumálum grannríkjanna. Aðgangur er ókeypis.
-
Ráðstefna: „Hvers vegna er danska svona erfið?"
-
Dagsetning
30/11 2011
til 30/11 2011
-
Danska menntamálaráðuneytið býður til norrænnar ráðstefnu um skilning á nágrannatungumálum með sérstakri áherslu á dönsku. Ráðstefnan „Hvers vegna er danska svona erfið?" verður haldin á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn og er hluti af norræna tungumálaátakinu. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Norrænt tungumálasamstarf og dönsku málnefndina.
-
Norræni loftslagsdagurinn
-
Dagsetning
11/11 2011
til 11/11 2011
-
Norræni loftslagsdagurinn verður haldinn í þriðja sinn þann 11.11.2011.Þema ársins er loftslag og matur. Á loftslagsdaginn eru nemendur og kennarar hvattir til umræðna um loftslagsmál. Dagurinn er þemadagur með verkefnum og samkeppni sem tengjast loftslagsmálum. Nánar á www.klimanorden.org
-
Afhending verðlauna til sigurvegara í samkeppni Norrænu ráðherranefndarinnar um þróun góðra tungumálaverkfæra
-
Dagsetning
01/11 2011
til 01/11 2011
-
Tveir aðilar sigruðu í samkeppni Norrænu ráðherraefndarinnar um tillögur að verkfærum sem nota má í starfi ráðherranefndarinnar við að aðstoða ungt fólk á Norðurlöndum við að bæta skilning á dönsku, norsku og sænsku. Á þessum hliðarviðburði mun Norræna ráðherranefndin afhenda sigurvegurunum tveimur viðurkenningarskjal og blóm. Tónlistarmenn úr Orkester Norden leika af fingrum fram og bornar verða fram veitingar.
-
Unga fólkið á Norðurlöndum og menningarleg fjölbreytni
-
Dagsetning
31/10 2011
til 31/10 2011
-
Norræni menningarsáttmálinn er 40 ára um þessar mundir og af því tilefni verða umræður um menningu á Norðurlöndum og menningarlega fjölbreytni. Komið og hlustið á Bertel Haarder, Manu Sareen, Shabana Rehman, Eskild Pedersen, Henrik Berggren, Minna Lindberg, Peder Duelund, Andrea Reuter og Charlotte Romlund Hansen.
-
Fjögur tungumál hið minnsta fyrir alla: Málstefnuúrlausnarefni framtíðarinnar"
-
Dagsetning
22/08 2011
til 24/08 2011
-
Ráðstefna um fjöltyngi á Norðurlöndum. Fjöltyngi er afdráttarlaus auðlind með marga kosti fyrir jafnt einstaklinginn og samfélagið í heild, en menntakerfið er oft ekki skipulagt á þann hátt að einstaklingar geti náð þessum árangri. Á ráðstefnunni verður fjallað um hvers konar málstefnu geti komið þessu til leiðar undir ólíkum kringumstæðum.
-
Þekkingarráðstefnan 2011: Þekkingarþríhyringurinn
-
Dagsetning
22/08 2011
til 24/08 2011
-
Sameiginleg ráðstefna fyrir alla hópa og nefndir í norrænu samstarfi sem heyra undir ráðherra menntamála og rannsókna. Ráðstefnan verður haldin í Åbo, Finnlandi. Kynningar frá ráðstefnunni eru birtar á þessari síðu.
-
Norræn sagnanámstefna 2011
-
Dagsetning
24/07 2011
til 30/07 2011
-
Markmiðið með verkefninu Norræn sagnanámstefna á Íslandi 2011 er að efla munnlega sagnahefð sem miðil fyrir samtímasögu og þróa sagnahefðina. Markhópur er Norðurlandabúar á öllum aldri og úr öllum starfsgreinum, sem hafa gaman að munnlegri sagnahefð.
-
Formennska Finna í Norrænu ráðherranefndinni, Finnlandsvikan
-
Dagsetning
13/07 2011
til 15/07 2011
-
Finnlandsvikan, sem verður sambærileg við sænsku almedalsvikuna, verður haldin í Björneborg. Formennska Finna í Norrænu ráðherranefndinni verður kynnt á Borgaratorginu. Þar verður hægt að fá upplýsingar um tækifæri innan norræna samstarfsins hvað varðar búsetu, nám og störf og einnig hvernig unnið er að því að létta norrænum þegnum og fyrirtækjum lífið.
-
Við lærum saman! Ráðstefna um hreyfanleika, tungumál og Nordplus
-
Dagsetning
24/05 2011
til 25/05 2011
-
Ráðstefna um hreyfanleika milli Norðurlanda, skandinavísku tungumálin og Nordplus áætlunina. Tækifæri sem Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin veita nemendum, stúdentum, kennurum og vísindamönnum? Dæmi um norrænt samstarf í almennu starfi skóla og annarra menntastofnanna. Á ráðstefnunni verður einnig lögð áhersla á þýðingu tungumála í alþjóðlegu samstarfi. Norræna ráðherranefndin og CIMO standa fyrir ráðstefnunni. Staður: Paasitorni, Helsingfors
-
Ráðstefna um orðabókafræði á Norðurlöndum, maí 2011
-
Dagsetning
24/05 2011
til 26/05 2011
-
Orðabókaritstjórn Sænsku Akademíunnar (SAOB), Norrænt félag um orðabókafræði og norska málnefndin bjóða til 11. ráðstefnunnar um orðabókafræði á Norðurlöndum. Sérfræðingar í orðabókafræðum, málvísindamenn, nemendur, þýðendur, útgefendur og þróunarstjórar eru boðnir til ráðstefnunnar.
-
Ráðstefna: Endurgjöf, samskipti með látbragði og að stara
-
Dagsetning
23/05 2011
til 28/05 2011
-
Fjallað verður um ólík tjáningarform, með og án orða, sem notuð eru sem viðbrögð í félagslegum samskiptum. Ráðstefnan er fyrst og fremst ætluð norrænum vísindamönnum, en nemendur og vísindamenn annars staðar frá eru einnig velkomnir.
-
Námstefna: Draumur og raunveruleiki. Dagur tungumálarannsókna 2011
-
Dagsetning
18/05 2011
til 18/05 2011
-
Námstefna um sænska tungu fyrir þýðendur, tungumálarannsakendur, fréttamenn og aðra sem nýta tungumálið. Þema ársins er þýðingar og stofnanamál. Haldin í samstarfi við Hugo Bergroth-fyrirtækið og Rannsóknastofnun um innlend tungumál.
-
Norræn ráðstefna: Nám og fjölmenningarlegir fundir
-
Dagsetning
24/03 2011
til 25/03 2011
-
Sameiginleg ráðstefna um samþættingu, sem er hluti verkefnis Norrænu ráðherranefndarinnar; IVEU (Samþætting með fullorðins- og framhaldsfræðslu). Þátttakendur verða fyrst og fremst vísindamenn og fólk í starfsþjálfun.
-
Norðurlandadagurinn hjá Nifin, Norrænu stofnunni í Finnlandi
-
Dagsetning
23/03 2011
til 23/03 2011
-
Norðurlandadagurinn verður haldinn hátíðlegur hjá NIFIN, með opnu húsi allan daginn! Fyrir hádegi verður rætt um tvítyngi í Finnlandi og um kvöldið verða umræður um norræna samstarfið, sem hófst þennan dag 1962.
-
Ráðstefna: Les- og ritfærni fullorðinna
-
Dagsetning
22/03 2011
til 23/03 2011
-
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að miðlun reynslu af því hvernig bæta má les- og ritfærni fullorðinna. Markmiðið er að auka skilning á kostum og göllum samspils atvinnulífs, menntastofnana og vinnumiðlana í þessu samhengi.
-
Námskeið fyrir norræna tungumálakennara
-
Dagsetning
11/03 2011
til 15/03 2011
-
Námskeiðið er byggt sem hringferð um Norðurlönd og norrænu tungumálin. Ferðin tekur viku og margir koma heim með minningar og fjölda nýrra hugmynda í farteskinu. Lögð er áhersla á að kennslufræði og aðferðir sem m.a. er hægt að nýta í tungumálakennslu.
