Norræn samfélög eru mótuð af þúsunda ára sambandi mannsins og náttúrunnar. Norræni náttúru- og menningararfurinn er því mikilvægur og vilji er til að vernda hann til gagns fyrir núverandi og komandi kynslóðir.
Markmið norræns samstarfs á sviði orkumála er að stuðla að sýnilegum og viðvarandi lausnum á þeim alvarlegu og mikilvægu áskorunum sem Norðurlöndin standa andspænis á sviði stefnumörkunar í orkumálum. Meðal annars þarf að sporna við losun gróðurhúsalofttegunda og tryggja að orkubirgðir í framtíðinni.
Hnattvæðing, þróun upplýsingasamfélagsins, íbúar sem eldast ásamt óviðunandi neyslu- og framleiðslumynstrum sem valda t.d. loftslagsbreytingum, hafa í för með sér bæði áskoranir og tækifæri fyrir Norðurlöndin. Til þess að leysa þessi úrlausnarefni og notfæra sér þessi tækifæri er þörf fyrir þverfaglegar norrænar aðgerðir sem samþætta grundvallarregluna um sjálfbæra þróun.
Norrænt samstarf um sjávarútvegsmál nær til sjávarútvegs, eldis og veiða. Samstarfið snýst um lifandi sjávarauðlindir. Samstarfið í Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni er pólitískt og beinist að stjórnmálamönnum og stjórnsýslu á Norðurlöndum. Kjarni samstarfsins er að stuðla að þróun sjálfbærrar nýtingar sjávarauðlinda eins og fiskjar og sjávarspendýra.
Norðurlöndin standa andspænis fjölda áskorana á umhverfissviðinu sem verður að takast á við í sameiningu - í þjóðlöndunum, svæðisbundið og hnattrænt. Þetta á aðallega við um loftlagsbreytingarnar, notkun og losun hættulegra efna, verndun lífríkis sjávar ásamt verndun og nýtingu líffræðilegs fjölbreytileika. Það er nauðsynlegt að styrkja samstarf Norðurlandanna til þess að nýta aðgengilegar auðlindir á sem hagkvæmastan hátt og til að finna sameiginlegar lausnir á Norðurlöndum.