Document Actions

Um norræna umhverfissamstarfið

Norðurlöndin standa andspænis fjölda áskorana á umhverfissviðinu sem verður að takast á við í sameiningu - í þjóðlöndunum, svæðisbundið og hnattrænt. Þetta á aðallega við um loftlagsbreytingarnar, notkun og losun hættulegra efna, verndun lífríkis sjávar ásamt verndun og nýtingu líffræðilegs fjölbreytileika. Það er nauðsynlegt að styrkja samstarf Norðurlandanna til þess að nýta aðgengilegar auðlindir á sem hagkvæmastan hátt og til að finna sameiginlegar lausnir á Norðurlöndum.

Vattenverk utanför Reykjavík
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Það er metnaður Norðurlandanna að vera í fararbroddi á umhverfissviðinu og miðla reynslu sinni til annarra. Vitundin um það að neyslu- og framleiðslumynstur okkar hefur afgerandi áhrif á ástand umhverfisins, felur í sér að líta verður á efnahags- og umhverfismál í samhengi.

Samstarfið á Norðurlöndum

Þegar rætt er um aðgerðir á Norðurlöndum eru verndun náttúru og umhverfis, varðveisla líffræðilegs fjölbreytileika, umhverfi og heilsa og sjálfbær neysla og framleiðsla ofarlega á dagskrá.

Þemu eins og umhverfi og efnahagsmál eru einnig mikilvæg. Tryggja á norrænum neytendum hollar vörur og matvæli og bestu upplýsingar, sem meðal annars er gert með norræna umhverfismerkinu Svaninum.

Norrænt samstarf byggir á grunnreglunni um norrænt notagildi sem felur í sér að löndin starfa saman þar sem löndin í sameiningu ná betri árangri en ef þau starfa hvert fyrir sig eða til að spara auðlindir. Samstarfið getur falist í að skipta með sér verkefnum eða í vinnu að sameiginlegu markmiði. Umhverfissamstarfið á tímabilinu 2009-2012 byggir á þessari grunnreglu og fjallar um eftirfarandi þemu:

  • Loftslag og loftgæði
  • Haf og strandsvæði
  • Líffræðilegan fjölbreytileika og vistkerfisþjónustu
  • Sjálfbæra neysla og framleiðslu

Alþjóðlegt umhverfisstarf

Virk þátttaka í alþjóðlegu samstarfi hefur lengi verið mikilvæg fyrir Norðurlöndin. Mörg umhverfisvandmál eru óháð landamærum og geta einnig verið orsök árekstra milli ríkja og þjóða.

Norðurlöndin gegna í sameiningu hlutverki í bæði evrópskri og hnattrænni þróun. Með samhæfðum aðgerðum hafa Norðurlöndin þess vegna getað lagt sitt af mörkum til alþjóðlegs umhverfisstarfs með árangursríkum verkefnum og margreyndum lausnum. Þessari vinnuaðferð verður áfram haldið og hún þróuð frekar.

Norðurlöndin stuðla að því að ESB vinni markvisst að umhverfismálum. Danmörk, Finnland og Svíþjóð eru aðilar að ESB og Noregur og Ísland taka þátt í umhverfisstarfi ESB í gegnum EES-samninginn. Norrænt umhverfissamstarf stefnir að því að bæta regluverk ESB og alþjóðlega samninga á umhverfissviðinu svo takast megi á við áskoranir á eins skilvirkan hátt og mögulegt er.

Lausn umhverfisvandans á grannsvæðum Norðurlandanna gegnir miklu hlutverki. Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO [en]) er árangursríkt norrænt verkefni sem fjármagnar mörg lítil og meðalstór umhverfisverkefni í Rússlandi, Úkraínu og Eystrasaltsríkjunum. Norræni fjárfestingabankinn (NIB) leggur sífellt meiri áherslu á umhverfismál, sérstaklega mál er varða loftslag og Eystrasaltið.

Norðurlöndin eru einnig virkir þátttakendur í umhverfissamstarfi Norðurskautsráðsins [en]Barentsráðsins [en]og Eystrasaltsráðsins [en] og einnig innan ramma svæðisbundinna samninga. Greinilega má sjá afleiðingar margra hnattrænna umhverfisógna í umhverfi Norðurskautssvæðisins.

Norðurlöndin hafa því markað stefnu um umhverfiseiturefni og loftslagsmál á Norðurskautinu með það að markmiði að varðveita hið einstaka umhverfi Norðurskautsins. Landfræðileg lega Norðurlandanna og mikil þekking á viðkvæmu umhverfi Norðurskautsins valda því að eðlilegt er að vekja athygli á aðstæðum Norðurskautsins í alþjóðlegu samhengi.

Hnattvæðing og umhverfi

Hnattvæðingin hefur í för með sér aukin samskipti milli landa á öllum sviðum og getur stuðlað að sameiginlegri sýn á mikilvægi umhverfismála. Norðurlöndin verða sífellt háðari umheiminum samhliða því að eftirspurn eftir takmörkuðum auðlindum jarðarinnar eykst.

Hin ört vaxandi risa-hagkerfi heimsins, eins og til dæmis Indland, Kína og Rússland hafa sífellt meiri áhrif á ástand umhverfisins í heiminum. Norðurlöndin vinna saman að þróunarhjálp og í gegnum alþjóðleg samtök í þeim tilgangi að miðla þekkingu og reynslu til þessara og annarra landa um málefni eins og vatnsbúskap, orkumál, loftgæði, umhverfistækni, eiturefni og loftslagsmál.

Norræn samstarf á sér stað til að finna samstarfsgrundvöll milli umhverfissáttmálanna og annarra aðila í alþjóðlegu umhverfissamstarfi. Norðurlöndin hafa lengi unnið að skilvirkri alþjóðlegri umhverfisstjórnun.

Til þess að umhverfismál fái aukið vægi innan Sameinuðu þjóðanna í heild sinni er einnig mikilvægt að styrkja Alþjóðlega umhverfisáætlun S.Þ., UNEP [en]. Hafið er samstarf um að samræma sáttmála um eiturefni og úrgang. Svipað samstarf ætti að eiga sér stað um líffræðilegan fjölbreytileika.

Árangur

Dæmi um sýnileg verkefni sem þegar hafa verið unnin og hafa haft mikil áhrif í norrænu verkefnasamstarfi eru verkefni um þróun vistvænna opinberra innkaupa, þróun verslunar með losunarkvóta fyrir gróðurhúsalofttegundir á Eystrasaltssvæðinu, vísar um líffræðilegan fjölbreytileika, vinna með framandi tegundir sem eru að nema land og sáttmálaskrá um náttúru og menningarumhverfi ásamt upplýsingabæklingi um kvikasilfur í alþjóðlegum samningaviðræðum í UNEP.

Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs

Til þess að auka vitund um náttúruvernd og umhverfisverndarstarf á Norðurlöndum veitir Norðurlandaráð árlega náttúru- og umhverfisverðlaun í tengslum við Norðurlandaráðsþing.

Verðlaunin eru veitt fyrirtæki, samtökum, fjölmiðli eða einstaklingi sem á hagkvæman hátt hefur samþætt umhverfissjónarmið í starf sitt eða á annan hátt unnið einstakt starf í þágu náttúru og umhverfis.

Verðlaunin nema 350.000 dönskum krónum og eru þau veitt með áherslu á sérstakt þema hvert ár.

Tengt efni
  • Norræn ráðherranefnd um umhverfismál (MR-M) (Samtök)

    Ráðherranefnd um umhverfismál, MR-M, stýrir samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um umhverfismál. Markmiðið með norræna umhverfissamstarfinu felst meðal annars í því að varðveita og bæta umhverfi og lífsgæði á Norðurlöndunum auk þess að hafa áhrif á svæðisbundið og alþjóðlegt samstarf.

  • Umhverfis- náttúruauðlindanefndin (Samtök)

    Umhverfis- og náttúruauðlindanefndin vinnur að því að viðhalda og þróa umhverfisvitund á Norðurlöndum


 

Tengiliður

Mats Ekenger
Sími: +45 3396 0282
Tölvupóstur:

Fréttabréf um umhverfismál

"Norrænt umhverfi" er rafrænt fréttabréf um samstarf Norðurlanda í umhverfismálum.