Document Actions

Vefslóðir

Finnar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2011. Þeir hafa ákveðið að á formennskuári verði megináhersla lögð á aðgerðir til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. Markmið er að styrkja stöðu Norðurlanda sem brautryðjenda og sameinaðs afls í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.
Finland er formandsland for Nordisk Ministerråd i 2011. Som hovedtema for formandskabet har Finland valgt håndtering af klimaforandringer på alle niveauer. Målet er at de nordiske lande skal have en endnu synligere rolle som en stærk og forenet aktør på klimaområdet.
Hnattvæðingarsamstarfið
Loftslag, umhverfis- og orkumál, rannsóknir, menntun og nýsköpun, landamærahindranir og aukin áhersla á Norðurlöndin í fararbroddi hnattvæðingar. Þetta eru þau svið sem norrænu ríkisstjórnirnar vilja leggja sérstaka áherslu á í norræna samstarfinu um hnattvæðingu, áskoranir og tækifæri fyrir Norðurlöndin.
Norræn ráðherranefnd um umhverfismál (MR-M)
Ráðherranefnd um umhverfismál, MR-M, stýrir samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um umhverfismál. Markmiðið með norræna umhverfissamstarfinu felst meðal annars í því að varðveita og bæta umhverfi og lífsgæði á Norðurlöndunum auk þess að hafa áhrif á svæðisbundið og alþjóðlegt samstarf.
Norræna ráðherranefndin um efnahags- og fjármálastefnu (MR-FINANS)
Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um efnahags- og fjármál er stjórnað af norrænu fjármálaráðherrunum, sem mynda ráðherranefndina MR-FINANS. Samstarfinu er ætlað að gæta norrænna hagsmuna á alþjóðavettvangi og stuðla að efnahagslegri samættingu á alþjóðavettvangi.
Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO)
NEFCO er norrænt umhverfisfjármögnunarfélag sem hefur það að meginmarkmiði að efla norræna þátttöku í umhverfismálum í mið- og Austur-Evrópu með því að fjármagna fyrirtæki í þessum löndum.
Norræni efnahópurinn (NKG)
Norræni efnahópurinn vinnur að markmiðasetningu hvað varðar efni og efnasambönd sem eflt geta sjálfbæra þróun sem byggir á heilsu- og umhverfisvernd jafnt fyrir núlifandi og komandi kynslóðir.
Norræni úrgangshópurinn (NAG)
Starf norræna úrgangshópsins miðar að sjálfbærri meðhöndlun úrgangs á Norðurlöndunum og í Evrópu. Norræn þátttaka í samningu reglugerða ESB er mikilvæg. Einnig skiptir miklu máli að í reglugerðum ESB sé tekið tillit til aðstæðna á Norðurlöndunum.
Norræni vinnuhópurinn um alþjóðlegar loftslagsviðræður (NOAK)
Meginmarkmið hópsins er að stuðla að alþjóðlegu samkomulagi um loftslagsmál.
Sérfræðingahópur um sjálfbæra þróun
Sérfræðingahópurinn skal veita norrænu samstarfsnefndinni og samstarfsráðherrunum ráðgjöf um sjálfbæra þróun.

 

Tengiliður

Mats Ekenger
Sími: +45 3396 0282
Tölvupóstur:

Fréttabréf um umhverfismál

"Norrænt umhverfi" er rafrænt fréttabréf um samstarf Norðurlanda í umhverfismálum.