Nordic Green ll er tveggja daga ráðstefna sem fjallar um ýmsar tegundir umhverfisvænnar tækni, en Norðurlönd eru í farabroddi í nýsköpun á því sviði. Ráðstefnan er framhald ráðstefnunar Nordic Green 2008. Nordic Green II er tilvalinn vettvangur fyrir norræn fyrirtæki að kynna sig á og stofna til tengsla við frumkvöðla, áhrifamenn í iðnaði, mögulega viðskiptavini, vísindamenn og sérfræðinga í hinu þróttmikla umhverfi sem einkennir Kísildalinn (Silicon Valley).
Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að árið 2010 sé ár líffræðilegs fjölbreytileika. Norræna ráðherranefndin leggur einnig áherslu á líffræðilegan fjölbreytileika í ár. Einn af hápunktum ársins verður ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni sem haldin verður í Nagoya, Japan, í október.
Sýning ársins á vistvænum vörum beinir sjónum að grænum hagvexti og lífsstíl. Þetta eru einnig sömu málefni og Norræna ráðherranefndin beinir nú sjónum að. Loftslagsbreytingar af mannavöldum valda mörgum áhyggjum. Það má gera ýmislegt til að skapa sjálfbæra framtíð; kaup á vistvænni vöru er skref í þá átt að verða meðvitaður neytandi og taka þátt í að vernda umhverfið.
Námstefna með handhöfum náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2010: Merkur Andelskasse (Da), Ekobanken (Sv) og Cultura bank (N). Verðlaunin eru veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem hefur unnið að því að hafa áhrif á fjármagnsmarkaðinn, fjármálaiðnaðinn, banka eða ráðgjafa og fengið þá til þess að samþætta sjálfbærni og umsjón fjármagns.
Á ráðstefnunni munu vísindamenn miðla hugmyndum og reynslu af ólíkum sviðum svo sem: áhrif mannsins á umheiminn, félagsfræði, stjórnmálafræði, fjölmiðla- og samskiptafræðum o.fl.
Þessi 10. norræna ráðstefna um umhverfis- og félagsvísindi er haldin í samstarfi Stokkhólmsháskóla, Stockholm Resilience Centre og Umhverfisstofnun Stokkhólms.
Meðal framsögumanna eru:
Ann-Kristine Johansson – formaður umhverfisnefndar Norðurlandaráðs /
Jens Mathiesen – forstjóri, Scandic í Danmörku /
Ivar Kristensen - framkvæmdastjóri, Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar: Ný norræn matargerðarlist og svæðisbundin ferðaþjónusta /
John Frederiksen - danska stéttarfélaginu 3F Katia K. Østergaard, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í hótel- og veitingarekstri og ferðaþjónustu í Danmörku: Samstarf til kynningar á sjálfbærri ferðaþjónustu /
Rasmus Wiinstedt Tscherning – framkvæmdastjóri Centre for Culture and Experience Economy: Framtíð sjálfbærrar ferðaþjónustu /
Framsögurnar verða á ensku og að þeim loknum verður borin fram loftslagsvæn hressing og fjölmiðlar fá tækifæri til að taka viðtöl.