Markmið norræns samstarfs á sviði upplýsingatækni einkennist af því að stefnt er að því með ólíkum áætlunum, verkefnum og átaksverkefnum að kynna Norðurlöndin sem hæfan, nýskapandi, þróttmikinn og einsleitan markað fyrir vöru, þjónustu og þekkingu sem tengist upplýsingatækni.
Norðurlöndin eru framarlega í notkun upplýsingatækni við hversdagsleg verkefni. Samkvæmt könnun sem gerð var af The Economist Intelligence Unit, eru Norðurlöndin í farabroddi í heiminum hvað varðar breiðbands- og nettengingar, tölvuþekkingu og fjárfestingar í upplýsingatækni.
Þetta gerir Norðurlöndum kleift að nýta upplýsingatækni í auknum mæli við þróun á fjölda sviða og einnig sem færi sem nota má til þess að kynna Norðurlöndin sem svæði þar sem þekking og færni á sviði upplýsignatækni er mikil.
Norrænt samstarf um eScience
eScience snýst um alþjóðlegt samstarf um lykilsvið vísinda og næstu kynslóðar grunngerðir sem gera samstarfið mögulegt.
Norrænt samststarf um eScience skapar nýja vídd í rannsóknum; það gerir vísindamönnum kleif að sannreyna kenningar og líkön með aðstoð ofurtölva og hraðvirkra tölvuneta.
Þessi uppbygging og þekking er mikilvægt framlag til þess að viðhalda og þróa norrænar öndegisrannsóknir.
eScience mun gegna lykilhlutverki í þróun vísindaaðferða framtíðarinnar og Norðurlöndin ættu að efla samstarf sitt á þessu sviði til lengri tíma litið með það fyrir augum að viðhalda og þróa eScience á Norðurlöndum.
Góður grundvöllur fyrir norrænt eScience samstarf er þegar til staðar í tölvunetum og háhraðanetum norrænu ríkjanna.
Norræn stefna um eScience
Árið 2007 samþykktur norrænu menntamála- og rannsóknaráðherrarnir norræna stefnu um eScience.
eScience-stefnan var unnin af vinnuhópi sem í voru fulltrúar frá norrænu samstarfsstofnunum um náttúruvísindi, heimspeki og samfélagsvísindi, og læknisfræði ásamt NordForsk, iðnaði, Norræna rágjafahópnum um æðri menntun (HÖGUT) og European e-Infrastructure Reflection Group (e-IRG).
NordForsk hefur fjármagnað norrænt samstarf (NORIA-net) á þessu sviði.
Auk þróunar og samstarfs á sviði eScience eru til stofnanir eins og NORDUnet (Norrænt innra skipulag fyrir rannsóknir og menntun) og Nordic DataGrid Facility (NDGF) sem sýnir að Norðurlöndin í sameiningu geta áorkað meiru en hvert land fyrir sig.
Rannsókn á þekkingarneti
eScience gegnir einnig lykilhlutverki í yfirstandandi möguleikakönnun á þekkingarneti til að styðja við frjálsa för þekkingar á Eystrasaltssvæðinu.
Um er að ræða rannsókn sem ýtt var úr vör af Norrænu embættismannanefndinni um menntun og rannsóknir (ÄK-U) sem fjallar um að kanna möguleikana á samstarfi á Eystrsaltssvæðinu um rannsóknir- og menntun sem tengjast eScience, háhraðanet, gagngrunna og fastlínunet.
Rannsóknin nær til samstarfs milli Norðurlanda og Norðvestur-Rússlands, Eistlands, Lettalnds, Litháen, Póllands og Þýskalands.
Umræðuvettvangur um stefnu í upplýsingatæknimálum
Til þess að tengja norræna stefnu um upplýsingatækni við þjóðlöndin, hefur norræna embættismannanefndin um menntun og rannsóknir ákveðið að setja á fót óformlegan umræðugrundvöll fyrir norræna ráðuneytisstjóra sem sjá um samræmingu á stefnu í upplýsingatæknimálum í hverju landi fyrir sig, með það að markmiði að skiptast á reynslu til dæmis hvað varðar stefnu og forgangsröðun ásamt reynslu af átaksverkefnum.
Sérfræðingahópur um upplýsingatækni
Norræna ráðherranefndin um menntun og rannsóknir(MR-U) hefur ákveðið að stofna ráðgjafahóp utanaðkomandi sérfræðinga um stefnu í upplýsingatækni fyrir ráðherranefndina. Markmiðið er að sérfræðingahópurinn eigi að geta lagt til stefnumarkandi samstarfsverkefni.
