- Info
Sækja um styrki
-
Grænlandssjóður
-
Hlutverk Grænlandssjóðs er að stuðla að nánari samskiptum Íslendinga og Grænlendinga og veitir sjóðurinn styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttasýninga og annarra málefna á sviði lista, vísinda og tæknimála. Höfuðstóll sjóðsins, sem ríkissjóður lagði til á árunum 1981 og 1982, er í vörslu Seðlabanka Íslands og er árlegri ávöxtun hans varið til styrkveitinga.
-
Langtíma lán frá Norræna fjárfestingabankanum (NIB)
-
NIB veitir viðbótarlán til lengri tíma til verkefna, sem stuðla að samkeppnisæfni og umhverfisvernd í samræmi við markmið NIB. NIB býður viðskiptavinum sínum, jafnt einkaaðilum og opinberum, sérsniðin lán og ábyrgðir á samkeppnishæfum kjörum.
-
Norræna tölvuleikjaáætlunin - Þróunarstyrkir
-
Markmiðið með Norrænu tölvuleikjaáætluninni er að tryggja árangursríkt skipulag fyrir þróendur, framleiðendur og dreifingaraðila tölvuleikja. Miðað er að því í áætluninni að samhæfa norrænar aðgerðir, tryggja upplýsingamiðlun og auka fagþekkingu. Norræn einkafyrirtæki geta sótt um styrki í áætlunina.
-
Norrænt Atlantshafssamstarf, NORA
-
NORA styrkir NORA-samstarfsverkefni, með þátttöku samstarfsaðila frá hið minnsta tveimur af fjórum NORA ríkjum (Grænlandi, Íslandi, Færeyjum og strandsvæðum Noregs). NORA á að stuðla að og auka samstarf á svæðinu með það að markmiði að gera Norður-Atlantshafsríkin að sterku norrænu svæði, sem einkennist af öflugri og sjálfbærri efnahagsþróun. Þetta er gert meðal annars með því að styrkja samstarfið milli fyrirtækja og rannsókna- og þróunarstofnana óháð landamærum.
