Document Actions

Um norrænt varnarsamstarf

Markmiðið með norrænu varnarsamstarfi er að efla varnir þjóðlandanna, ná fram samlegðaráhrifum og finna skilvirkar sameiginlegar lausnir. NORDEFCO, the Nordic Defence Cooperation er sú stofnun sem ber ábyrgð á framkvæmd samstarfsins á sviðum eins og t.d. varðandi flutninga og þjónustu, menntun og æfingar, vöktun loftrýmis og hafsvæða og alþjóðlegar aðgerðir.

Frá lokum seinni heimsstyrjaldar hafa Norðurlöndin haft ólíka afstöðu til alþjóðasamtaka.

Danmörk, Ísland og Noregur eru aðilar að NATÓ. Danmörk, Finnland og Svíþjóð eru aðilar að ESB.

Finnland og Svíþjóð hafa eftir stríð lagt áherslu á að standa utan hernaðarbandalaga, en hafa nálgast NATÓ undanfarin ár með því að gera samstarfssamninga við bandalagið.

Öll Norðurlöndin eru áheyrnaraðilar að Vestur-Evrópusambandinu, VEU.

Núverandi samstarf

Norrænu utanríkisráðherrarnir urðu sammála um samstöðuyfirlýsingu á sviði utanríkis og varnarmála milli norrænu ríkjanna á fundi í Helsinki í apríl 2011.

Með samstöðuyfirlýsingunni lýsa ríkin fimm því yfir að ef norrænt ríki verður fyrir áfalli eða árás, munu hin ríkin veita viðeigandi aðstoð.

Hefð er fyrir því á Norðurlöndum að taka þátt í friðargæsluverkefnum um allan heim.

Undanfarið hefur áherslan flust yfir á viðbrögð við vá. Nýjasta sameiginlega verkefnið er aðgerðahópurinn Nordic Battle Group sem Finnland, Svíþjóð og Noregur hafa myndað ásamt Eistlandi og Írlandi á vettvangi ESB.

NORDEFCO var stofnað árið 2009 í tengslum við samstöðusamning sem varnarmálaráðherrarnir gerðu með það að markmiði að efla norrænt varnarsamstarf og auka skilvirkni þess.

NORDEFCO er viðbót við og eðlileg þróun þess samstarfs í Evrópu og á Atlantshafssvæðinu sem áður er getið, en kemur í stað norrænu samninganna NORDCAPS, NORDAC og NORDSUP.

Markmiðið með varnarsamstarfinu er að efla varnir þjóðlandanna, kanna möguleika á samlegðaráhrifum og finna skilvirkar sameiginlegar lausnir á eftirfarandi sviðum:

  • Flutningum og þjónustu
  • Menntun og þjálfun
  • Vöktun loftrýmis og hafsvæða
  • Alþjóðlegum aðgerðum

Markmiðið með samstarfinu er að efla áðurnefnd svið ásamt því að ná fram skilvirkri dreifingu kostnaðar og nýtingu fjármagns. NORDEFCO er einnig ætlað að vinna að sameiginlegri afstöðu í málefnum sem tengjast norrænu varnarsamstarfi.

Samstarf í framtíðinni

Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi varnarmála- og utanríkisráðherra Noregs, kynnti skýrsluna ”Norrænt samstarf um utanríkis- og öryggismálastefnu” árið 2009.

Í skýrslunni eru lagðar fram 13 tillögur til að efla norrænt samstarf. Tillögurnar eru kynntar undir eftirfarandi fyrirsögnum:

  • Uppbygging friðar
  • Loftrýmisgæsla
  • Vöktun hafsvæða og málefni Norðurskautsins
  • Þjóðfélagsöryggi
  • Utanríkisþjónusta
  • Hernaðarsamstarf

Skýrslan var unnin að frumkvæði norrænu utanríkisráðherranna og myndaði grundvöll norræna samstöðusamningsins. NORDEFCO nær ekki til allra þátta skýrslunnar, en hún verður í framtíðinni notuð sem undirstaða aukins samstarfs.

Stoltenberg leggur t.d. til að Norðurlöndin gefi út gagnkvæma stuðningsyfirlýsingu um varnarmálastefnu sem skýrir hvernig þau munu bregðast við ef annað norrænt ríki verður fyrir árás eða þrýstingi.


 

Tengiliður

Helgi Þorsteinsson
Sími: +45 33 96 04 59
Tölvupóstur: