- Info
Vefslóðir
-
Efnahags- og viðskiptanefndin
-
Efnahags- og viðskiptanefndin fjallar um efnahagsumhverfi, rannsóknir, framleiðslu og verslun, þar með talið frelsi á markaði og atvinnumarkaði á Norðurlöndum.
-
Fréttabréfið Atvinnulíf á Norðurlöndum
-
Atvinnulíf á Norðurlöndum er fréttabréf ætlað þeim sem stjórna, þróa og stunda rannsóknir á atvinnulífi á Norðurlöndum. Í blaðinu eru birtar fréttir og staðreyndir, greiningar, greinar og umræður auk frásagna úr atvinnulífinu. Rannsóknastofa um atvinnumál í Ósló gefur út ritið Atvinnulíf á Norðurlöndum, fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar.
-
Gränskommittén Østfold - Bohuslän/Dalsland
-
Regionen Østfold-Bohuslän/Dalsland har det tätaste och mest frekventa kontaktmönstret längs hela svensk-norska gränsen. Samarbetet Østfold-Bohuslän/Dalsland inleddes år 1980 för att främja utvecklingen i området och för att få ett forum för frågor som rör båda länderna.
-
Halló Norðurlönd
-
Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, aðstoðar m.a. fjölskyldur með skýrum leiðbeiningum um það hvernig til að mynda hægt er að flytja milli Norðurlandanna eða ferðast yfir landamæri til vinnu.
-
Hjúkrun á Norðurlöndum
-
Hjúkrun á Norðurlöndum er norrænt tímarit, sem samstarfsnet hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (SSN) gefur út. Í ritinu er fjallað um hjúkrunarfræði og þróun sem miðar að því að auka gæði í hjúkrun. Hjúkrun á Norðurlöndum er vettvangur þar sem norrænir hjúkrunarfræðingar eiga þess kost að birta fræðigreinar og stuttar greinar á dönsku, norsku, sænsku og ensku.
Tímaritið er ætlað hjúkrunarfræðingum sem stunda rannsóknir, eru í stjórnunarstöðum og/eða kenna hjúkrun og öllum faghópum sem áhuga hafa á þróun fræða og rannsókna innan hjúkrunar.
-
Landamæraþjónustan
-
Landamæraþjónustan er upplýsingaþjónusta fyrir þá sem ferðast til vinnu og aðra sem ferðast milli Svíþjóðar og Noregs. Þjónustan er samstarfsverkefni sveitarfélaganna Hedmark, Akershus og Østfold í Noregi og Dalarna og Värmlands léna í Svíþjóð.
-
Nordjobb
-
Markmiðið með Nordjobb er að auka þekkingu á Norðurlöndunum og auka þekkingu á tungumálum og menningu á Norðurlöndunum með því að bjóða ungu fólki á aldrinum 18 til 28 ára sumarstörf í öðru norrænu landi en heimalandinu eða á einu sjálfstjórnarsvæðanna.
-
Norræn stofnun um framhaldsmenntun á sviði vinnuumhverfismála (NIVA)
-
NIVA er norræn stofnun sem hefur það hlutverk að vera vettvangur þekkingarmiðlunar á sviði vinnuumhverfis og atvinnulífs. NIVA stendur fyrir menntun, meðal annars með því að halda námskeið og vinnustofur.
-
Norræna ráðherranefndin um atvinnulíf (MR-A)
-
Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna á sviði vinnumarkaðsmála, og á sviði vinnuumhverfis og vinnuréttar er stýrt af norrænu atvinnumálaráðherrunum, saman mynda þeir ráðherranefnd um atvinnulíf.
-
Öresundskommittén
-
Öresundskomiteen har siden 1993 været en vigtig politisk drivkraft for den øresundsregionale udvikling. Öresundskomiteen sätter politisk fokus på arbetsmarknad och gränshinder, infrastruktur och kultur och folkligt engagemang.
-
Ráðherranefnd um jafnrétti (MR-JÄM)
-
Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um jafnréttismál er stýrt af jafnréttisráðherrunum, en þeir sitja í ráðherranefnd um jafnréttismál (MR-JÄM). Sameiginleg menning, saga og lýðræðishefðir Norðurlandanna gera þeim kleift að þróa náið og uppbyggilegt samstarf á sviði jafnréttismála.
-
Samstarfsnet hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (SSN)
-
Samstarfsnet hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (SSN) eru svæðisbundin samtök eftirtalinna samtaka norrænna hjúkrunarfræðinga: Felagið Føroyskir Sjúkrarøktarfrøðingar, Dansk Sygeplejeråd, Danmörku, Finlands sjuksköterskeförbund, Finnlandi, Felagið Føroyskir Sjúkrarøktarfrøðingar, Færøyene, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Íslandi, Norsk Sykepleierforbund, Noregi og Vårdförbundet, Svíþjóð.
SSN var stofnað árið 1920 og eru félagar rúmlega 300.000 norrænir hjúkrunarfræðingar.
-
Starfsmenn í iðnaði á Norðurlöndum (IN)
-
Í samtökunum Starfsmenn í iðnaði á Norðurlöndum (IN) sameina 22 norræn stéttarfélög krafta sína með það að markmiði að auka áhrif sín á Norðurlöndum, í Evrópu og á alþjóðavettvangi.
-
Um norræn starfsmannaskipti
-
Í gegnum starfsmannaskiptin gefst ríkisstarfsmönnum kostur á að kynna sér stjórnsýslu í öðru norrænu landi/löndum en heimalandi. Hvert þjóðland fyrir sig veitir styrki, greiðir þá út og hefur eftirlit með þeim. Umsækjendum er því bent á að hafa samband við umsjónarmann styrkjana í sínu heimalandi
-
Upplýsingahópur um atvinnulífsmálefni (NIAL)
-
Vinnuhópurinn á að skipuleggja og sjá um upplýsingadreifingu á sviði atvinnulífsmála.
-
Vinnumarkaðsnefndin
-
Nefndin skal efla og þróa norrænt samstarf á sviði atvinnumála, vinnumarkaðsmál almennt og rannsóknir á vinnumarkaðsmálum.
-
Vinnuréttarnefndin
-
Nefndin skal meðal annars miðla upplýsingum og reynslu innan Norðurlandanna á sviði vinnuréttar. Jafnframt á hún að setja á laggirnar verkefni, sem tengjast vinnurétti og fygjast með og meta framgang verkefna sem í gangi eru.
